HÚSASJÁ

Kristnibraut 51

01-0204 · 113 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
32 myndir

130 m²

Stærð

3

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2003

Byggingarár

4739 m²

Lóð

Garður

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



39 dagar á sölu

sell

94.500.000 kr

723.583 kr/m²

Fasteignasala Sævars Þórs kynnir glæsilega þriggja herbergja 130,6 fm útsýnis íbúð á 2. hæð við Kristnibraut 51 í fjögurra hæða fjölbýlishúsi í Grafarholti í Reykjavík. Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, 2 svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, geymslu og bílskúr.

Nánari lýsing

Gengið er inn í íbúðina um flísalagt hol. Þar er einnig góður fataskápur. Þaðan er gengið í alrými sem inniheldur stofu og borðstofu. Íbúðin er parketlögð með vönduðu ljósi parketi en eldhús, forstofa, þvottahús og klósett er flísalagt. Úr stofunni er opið inn í eldhús. Eldhús er með eldri en vandaðri eldhúsinnréttingu sem hefur verið vel við haldið. Innan úr alrýminu er hol þar sem gengið er inn í svefnherbergin, baðherbergi og þvottahús. Vandaðir rúmgóðir fataskápar eru í báðum herbergjum. Baðherbergið er vandað með flísum og baðkari með sturtu. Sér þvottahús er í íbúðinni. Út frá stofunni eru yfirbyggðar svalir sem vísa í suður. Íbúðin er öll mjög björt og fallega.

Íbúðinni fylgir bílskúr sem vísar til norðurs með útsýni til Korpúlfsstaða og sjávar og er ekki amalegt að dunda sér í honum með það útsýni fyrir augunum. Í sameign er mjög rúmgóð sérgeymsla með glugga sem fylgir íbúðinni og væri hægt að nýta sem auka herbergi.

Sameign hefur verið mjög vel við haldið sem og stigagangi, sem er teppalagður. Húsið er allt að utan í góðu ástandi og engar framkvæmdir fyrirhugaðar.

Íbúðin er mjög nálægt allri þjónustu og eru tveir grunnskólar í hverfinu og þrír leikskólar. Stutt er í matvöruverslanir í hverfinu og Golfklúbb Reykjavíkur.

Um er að ræða bjarta og fallega íbúð á annarri hæð á þessum frábæra stað með góðu útsýni í mjög friðsælu hverfi umkringdu mikilli náttúru. Úlfarsfell nálægt og stutt í Reynisvatn. Einstak tækifæri fyrir þá sem eru að leita sér að íbúð á þessum frábæra stað í Reykjavík með sér bílskúr. Tvær hleðslustöðvar eru á sameiginlegu bílaplani.

Laus strax.

Kort af Kristnibraut 51

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30Mynd 31Mynd 32