Borgartún 28
05-0203 · 105 Reykjavík



120 dagar á sölu
57.900.000 kr
499.569 kr/m²
Borgir fasteignasala kynnir eignina Borgartún 28, 105 Reykjavík, nánar tiltekið eign merkt 02-03, fastanúmer 226-0184 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Eignin Borgartún 28 er skráð sem hér segir hjá FMR ,birt stærð 115.9 fm. Einnig er seljandinn tilbúinn að leigja eignina.
Nánari upplýsingar veita:
Jóhanna Margrét Jóhannsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 8200788, tölvupóstur johanna@borgir.is.
Bjarklind Þór Löggiltur fasteignasali, í síma 6905123, tölvupóstur bjarklind@borgir.is.
Söluyfrlit
Um er að ræða skrifstofuhúsnæði í einu eftirsóttasta viðskiptaumhverfi Reykjavíkur. Húsnæðið er á 2.hæð með mikið af gluggum með útsýni til norðurs, gler eru með sólarfilmu. Húsnæðið er að mestu leyti einn salur sem bíður uppá mikla möguleika. Búið er að stúka af eldhús og í því er vaskur, innrétting, eldavél með ofn. Annað rými er með hurð sem gæti nýst sem fundarherbergi eða skrifstofa þar eru gluggar á tvo vegu austur og vestur. Stórt baðherbergi er í húsnæðinu en salernið er frammi í sameign. Á gólfunum er parket nema flísar á baðherbergi og eldhúsi.
Umhverfi: Í nágrenni við húsnæðið eru veitingastaðir, apótek og verslanir allt í göngufæri. Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Vill Borgir því skora væntanlega kaupendur á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bæra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 70.000 mvsk.

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna














