HÚSASJÁ

Merkigil 26

01-0103 · 603 Akureyri

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
29 myndir

71 m²

Stærð

1

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2002

Byggingarár

1497 m²

Lóð

Sérinngangur

Svalir

Geymsla

Þvottahús



35 dagar á sölu

sell

60.900.000 kr

856.540 kr/m²

Kasa fasteignir 461-2010.

Merkigil 26, 603 Akureyri - Vel skipulagt og vandað 71,1 fm einnar hæðar raðhús á vinsælum stað í Giljahverfi.

Eignin skiptist í forstofu, þvottahús, baðherbergi, svefnherbergi, stofu, eldhús og geymslu sem nýtist sem herbergi. Úr stofu er gengið út á sólpall til vesturs.

Tvö bílastæði framan við húsið fylgja eigninni.

Forstofa er flísalögð. Þar er hiti í gólfi, opið fatahengi og skápur.

Þvottahús er flísalagt. Þar er sprautulökkuð innrétting og opnanlegur gluggi.

Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Baðkar með sturtutækjum og innrétting er sprautulökkuð í hvítum lit.

Hjónaherbergi er parketlagt með góðum fataskáp.

Stofa er parketlögð og úr henni er gengið út á sólpall.

Eldhús er parketlagt. Innrétting er hvít með spónlögðum hliðum og flísar eru á milli skápa. Uppþvottavél fylgir eigninni við sölu.

Geymsla/herbergi er parketlagt með góðum glugga. Rýmið er notað sem svefnherbergi í dag.

Sólpallur snýr til vesturs og er steyptur með viðar-skjólgirðingu. Afar skjólsæll og gróinn garður.

Nánari upplýsingar í síma 461-2010 eða kasa@kasafasteignir.is

------------

Skoðunarskylda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Kort af Merkigil 26

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð