HÚSASJÁ

Eikarás 5

01-0101 · 210 Garðabæ

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
30 myndir

324 m²

Stærð

10

Herbergi

5

Svefnherbergi

4

Baðherbergi

2003

Byggingarár

801 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Bílskúr

Þvottahús

Heitur pottur



642 dagar á sölu

sell

349.000.000 kr

864.289 kr/m²

Glæsilegt einbýlishús sem er á frábærum útsýnisstað fyrir neðan götu í þessu barnvæna og eftirsótta hverfi. Hér er stutt í skóla, leikskóla og alla helstu þjónustu. Í húsinu er innbyggður bílskúr, fimm svefnherbergi sem auðvelt væri að fjölga, hjónasvíta með fataherbergi og sér baðherbergi.   Fjögur baðherbergi alls.  Arinn er í stofu, heitur pottur á verönd og sér hannaður garður með leiktækjum fyrir börnin, sauna, líkamsrækt, stórt leikherbergi og skrifstofa prýða þessa einstöku eign.

Skipti möguleg á minni eign.

Komið er inn í forstofu með mikilli lofthæð, skápur, gestasnyrting. Eldhús er með snyrtilegri innréttingu, eyja, hurð er út á verönd. Borðstofa er með fallegu útsýni yfir Gálgahraun, Álftanes og til Bessastaða. Stórar grill suðvestur svalir eru útaf borðstofu.

Á neðri hæð er þvottahús með sér inngangi og einnig er innangengt úr krakkainnganginum í rúmgóðan bílskúr sem er með stóru óskráðu millilofti. Hjónasvíta er á efri hæð og þar er fataherbergi og sér baðherbergi. Stofurnar eru með arni og björtum turni með útsýni í allar áttir sem býr til einstaka upplifun í stofu og setur sterkan svip á húsið. Innaf er skrifstofuherbergi. Á neðri hæð er 49,5 fm leikherbergi sem ekki er skráð hjá Hms, þar er gluggi. Líkamsræktaraðstaða er líka óskráð 30,2 fm rými og er það  með sturtu, snyrtingu, saunu og góðu aðgengi að verönd sem er með heitum potti. Fjögur rúmgóð barnaherbergi eru á neðri hæð.

Hér er á ferðinni frábært fjölskylduhús á eftirsóttum stað sem margir hafa beðið eftir. Allar nánari upplýsingar veitir Ásmundur Skeggjason fasteignasali, as@hofdi.is, Gsm 895 3000.-

Hringdu núna og bókaðu tíma í einkaskoðun.

Kort af Eikarás 5

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð