HÚSASJÁ

Barðastaðir 41

03-0101 · 112 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
42 myndir

226 m²

Stærð

4

Herbergi

4

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

2002

Byggingarár

2005 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús

Heitur pottur



547 dagar á sölu

sell

149.900.000 kr

664.450 kr/m²

Guðmundur Þór Júlíusson og Ástþór Reynir löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu kynna í einkasölu:

*Seljandi skoðar skipti á 3-4ja herbergja eign með sérinngangi.

Glæsilegt fjölskylduheimili með stórkostlegu útsýni í Grafarvogi. Vandað og vel staðsett raðhús við Barðastaði 41, 112 Grafarvogur, Einstaklega fallegt, rúmgott og vandað raðhús á tveimur hæðum í Grafarvogi. Eignin er byggð árið 2002, skráð 225,6 m² þar af innbyggður bílskúr. Að auki fylgir 44 m² óskráð rými sem býður upp á ótrúlega möguleika. Heildarstærð eignarinnar er því um 270 m².

Bókið skoðun hjá Gumma Júl í síma 858-7410 eða með tölvupósti á netfangið gj@remax.is eða á Ástþór Reyni í síma 899-6753 eða með tölvupósti á netfangið arg@remax.is

Lóðin er 2.005 m² sameiginleg. Fasteignamat ársins 2025 er 132,6 m.kr., hækkar í 149,5 m.kr. árið 2026 – sem undirstrikar verðmæti og eftirsókn þessa húss.

Efri hæð – björt rými og stórkostlegt útsýni

Forstofa: Flísalögð með góðum skápum.

Herbergi: Rúmgott, parketlagt með fataskáp.

Gestasalerni: Flísalagt, smekklegt með vegghengdu salerni, innréttingu og handklæðaofni.

Eldhús: Nýlegt U-laga eldhús (ekki upprunalegt) með granítborðplötu, vandaðri innréttingu og nýlegum tækjum. Mikið skápa- og vinnupláss.

Borðstofa og stofa: Stórt alrými með góðri lofthæð, parketi og stórum gluggum. Hér er hjarta heimilisins.

Svalir: Útgengt á suðvestursvalir með glæsilegu sjávarútsýni yfir sundin og að Esjunni.

Neðri hæð – fjölskylduvænt skipulag og sveigjanleiki

Hjónaherbergi: Rúmgott með útgengi á stóran sólpall.

Tvö barnaherbergi: Björt, parketlögð og með fataskápum.

Sjónvarpshol: Rúmgott fjölskyldurými.

Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, stór innrétting og rúmgóð sturta. Sturtubotnar nýlega endurnýjaðir.

Þvottahús/geymsla: Rúmgott, með góðu skápaplássi og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara.

Óskráð rými (44 m²): Með sturtu og potti. Hentar sem heilsulind, líkamsrækt, heimabíó eða „man cave“.

Sólpallur: Stór, lokaður timburpallur með rafmagnstengingu fyrir heitan pott. Einstakur staður til útivistar og samveru.

Bílskúr og lóð

Bílskúr: 43,6 m², innbyggður og rúmgóður. Gólf nýlega endurnýjað. Á ytri vegg hússins er hleðslustöð fyrir rafmagnsbíl.

Lóð: Bílaplan með hitalögnum. Svæðið við hlið bílaplansins býður upp á fjölbreytta möguleika til útivistar og að njóta dagssólarinnar.

Helstu kostir

Glæsilegt útsýni yfir sundin og Esjuna

Nýlegt U-laga eldhús með granítborðplötum (ekki upprunalegt)

Björt og rúmgóð rými með góðri lofthæð

Fjögur svefnherbergi ásamt sjónvarpsholi

Sturtubotnar nýlega endurnýjaðir

Óskráð rými, 44 m², með fjölmörgum möguleikum

Sólpallur með rafmagnstengi fyrir heitan pott

Innbyggður bílskúr með nýlögðu gólfi og hleðslustöð á ytri vegg

Svæði við hlið bílaplans sem nýtist vel til útivistar og sólbaða

Staðsetning við sjávarsíðuna og Korpúlfsstaðagolfvöll

Fallegar göngu- og hjólaleiðir allt um kring

Barðastaðir 41 er ekki bara raðhús – þetta er heimili með karakter, einstöku útsýni og fjölbreyttum möguleikum sem sjaldan gefast. Hér fær fjölskyldan rúmgott, bjart hús þar sem stíll og notagildi fara saman, með glæsilegu útsýni og sveigjanlegum rýmum sem auðvelt er að aðlaga að þörfum hvers og eins.

Allar nánari upplýsingar um eignina veita:

Guðmundur Þór Júlíusson löggiltur fasteignasali í síma 858-7410 eða gj@remax.is

Ástþór Reynir löggiltur fasteignasali í síma 899-6753 eða arg@remax.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.

Kort af Barðastaðir 41

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30Mynd 31Mynd 32Mynd 33Mynd 34Mynd 35Mynd 36Mynd 37Mynd 38Mynd 39Mynd 40Mynd 41Mynd 42