Skammbeinsstaðir 3
01-0101 · 851 Hellu



224 dagar á sölu
189.000.000 kr
682.557 kr/m²
Davíð Matthíasson, lögg. fasteignasali s: 8981713 / david@landmark.is hjá Landmark fasteignamiðlun kynnir til sölu:
Glæsilega jörð í Holta-og Landsveit - Skammbeinsstaðir 3 Ia, Rangárþing ytra
44,9 hektrara jörð, afar fallegt útsýni yfir Heklu og nærliggjandi fjöll. Friðsælt svæði í um klukkustundar akstursfjarlægð frá Reykjavík.
Góður húsakostur sem telur 3-4 herbergja einbýli með stóru alrými, heitum pott og gufu - 94.6m2 - byggt 2002.
Útihús 182,3 m2 - sem telur 8 rúmgóðar stíur, breiðan fóðurgang og samliggjandi vélaskemma. Vandaðar innréttingar.
Heitt vatn er á svæðinu.
Eignin er á þremur fastanúmerum. Samtals ca 44.9 hektarar. Húsakostur samtals 276.9m2. Glæsilegt útsýni, vandaður húsakostur og frábær staðsetning.
Eignin skiptist í :
Einbýli : 3-4 herbergja 94.6m2 hús sem saman stendur af forstofu, eldhús með borðkrók, alrými með borðstofu og stofu - útgengt út á stóran pall og með glæsilegu óhindruðu útsýni. Tvö svefnherbergi, möguleiki að stúka af það þriðja. Baðherbergi með sturtu. 11m2 aðliggjandi rými með gufu, salerni og þvottahúsi. Heitur pottur á besta stað með glæsilegu útsýni. Hiti er í gólfi.
Hesthús : Byggt 2010, saman stendur af 3 rúmgóðum tveggjahesta stíum og 5 einshesta stíum . Vandaðar innréttingar úr ryðfríiu stáli og viðhaldsfríum plastborðum. Hiti í gólfum. Góð gerði og viðrunarhólf.
Vélaskemma : Snyrtileg, rúmgóð vélaskemma sem er áföst hesthúsi. Býður upp á mikla möguleika. Hiti í gólfi. Þriggja fasa rafmagn. Salerni.
Jörð : 44.9 hektara af mjög grasgefnu landi. Allt land vel girt með rafmagnstrengjum. Hólfað upp í beitarhólf. Frostfrítt rennandi vatn í þremur beitarhólfum. Niðurgrafinn gámur, frágenginn, nýtist sem geymsla með rafmagni.
Einstakt tækifæri til að eignast draumaathvarfið í friðsælu umhverfi með fallegu óhindruðu útsýni.
Nánari upplýsingar um eign:
Davíð Matthíasson lögg.fasteignasali s. 8981713 eða david@landmark.is
FÁÐU SENT SÖLUYFIRLIT YFIR EIGN STRAX HÉR.
- Góð og persónuleg þjónusta
- Hafðu samband og ég kem og met eignina þína þér að kostnaðarlausu.
- Davíð Matthíasson lögg.fasteignasali s: 8981713 eða david@landmark.isSkoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna























