Steinsstaðaflöt 13
01-0101 · 300 Akranesi



40 dagar á sölu
115.000.000 kr
605.263 kr/m²
LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir rúmgott og vel skipulagt 156,1 m2 einbýlishús á einni hæð auk 33,9 m2 bílskúr alls 190 m2. Í húsinu eru fjögur svefnherbergi með fataskápum, Stofurnar eru bjartar og rúmgóðar, úr stofunum er gengið út á lokaða verönd beggja vegna hússins, heitur rafmagnspottur á suðurverönd
Nánari lýsing
Forstofa með flísalögðu gólfi og fataskáp.
Hol með flísalögðu gólfi. Innangengt þar i öll rými.
Gestasnyrting með flísalögðu gólfi og veggjum innrétting með efri og neðri skáp, og skápur til hliðar.
Gangur fyrir framan þvottahús með skápum, hillum og vinnuborði, flísar á gólfi.
Þvottahús með flísalögðu gólfi , innrétting með efri og neðri skápum, handklæðaofn. Þvottasnúrur, útgengi út á lóð.
Eldhús opið að hluta inn í stofu, innbyggð uppþvottavél ( fylgir ekki með ) gert er ráð fyrir ísskáp i innrétting, tveir Siemens ofnar með sjálfhreinsibúnaði i vinnuhæð, span helluborð frá Bosch, flísar á gólfi.
Stofa -borðstofa með parketi og flísum á gólfi , útgengt frá borðstofu út á verönd
Baðherbergi með flísalögðu gólfi og veggjum, flísalagt baðkar og walk-in sturta, innrétting með efri og neðri skápum, handklæðaofn.
Hjónaherbergi með parketi á gólfi og nýjum fataskáp.
Barnaherbergin eru þrjú með parketi á gólfi og fataskápum.
Bílskúr með finum innréttingum, heitt og kalt vatn, rafmagnsopnari, búið að leggja fyrir rafmagnsbíl.
Geymsluskúr á lóð fylgir með.
Húsið er í grónu hverfi, staðsett í næsta nágrenni við Byggðasafnið að Görðum. Stór verönd bakatil og framan við hús með heitum rafmagnspotti . Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálasdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna




























































