Bjarnastaðir (svæði 2) 2
01-0101 · 320 Reykholti í Borgarfirði



164 dagar á sölu
25.900.000 kr
575.556 kr/m²
Guðný Ösp lgf., s. 665-8909 og fasteignasalan TORG kynnir vel skipulagðan sumarbústað við Bjarnastaði 2
Um er að ræða vel við haldið sumarhús í Hvítársíðu í Reykholti á landi Bjarnastaða. Sumarhúsið er byggt árið 2001 og er staðsett á 3000 m2 lóð en skv., fasteignayfirliti HMS er bústaðurinn samtals skráð 45 m2 en geymsluhús er staðsett á lóðinni sem er ekki skráð inn í heildar fermetra fjöldar eignarinnar.
Nánari lýsing:
Forstofa: parket á gólfi.
Geymsla er staðsett við inngang hússins.
Gangur: parket á gólfi.
Baðherbergi: flísalagt með sturtuklefa, salerni og handlaug.
Herbergi I og II: parket á gólfi.
Svefnloft: stigi frá gangi upp á svefnloft/ris þar sem koma má fyrir tveimur einstaklings rúmum.
Eldhús: rúmgott og bjart eldhús, með ljósri eldhúsinnréttingu og góðu skápaplássi.
Stofa: parket á gólfi, frá stofu er útgengt út á stóran pall með grindverki sem er c.a. 25 m2 með fallegu útsýni.
Útigeymsla er staðsett á lóð sem hentar vel fyrir garðhúsgögn o.fl.
Landeigendur sjá um mokstur að lóðamörkum á veturna og ruslagámur er inni á svæðinu. Í gildi er lóðarleigusamningur sem er í gildi til 25 maí 2045.
Hitaveita er í húsinu. Fast gjald hitaveitu er um 18.000 kr. á mánuði ásamt árgjaldi sem greitt er einu sinni á ári.
Bústaðurinn er vel staðsettur og stutt er í margar náttúruperlur vesturlands eins og Húsafell, Langjökul, Reykholt, Kraumu, Hraunfossar og fleiri staðir sem vert er að heimsækja.
Nánari upplýsingar veitir: Guðný Ösp, lgf. s. 665-8909 eða gudny@fstorg.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign: Stimpilgjald af kaupsamningi: 0.8% af fasteignamati eignar fyrir einstaklinga en 1.6% fyrir lögaðila en 0.4% ef um fyrstu íbúðarkaup er að ræða.
Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali. Umsýslugjald fasteignasölu, samkvæmt gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna











