Grensásvegur 12
01-0103 · 108 Reykjavík



6 dagar á sölu
84.000.000 kr
596.167 kr/m²
Kjöreign ehf., fasteignasala, Ármúla 21, Reykjavík, sími 533-4040 kynnir gott og bjart verslunarhúsnæði á jarðhæð/götuhæð við Grensásveg, Reykjavík. Birt stærð er 140,9 fm.
Almennt um húsið. Húsið er steinsteypt bygging, framhús á 4 hæðum og bakbygging á tveimur hæðum. Húsnæðið er á jarðhæð/götuhæð í framhúsinu. Húsið var allt endurgert fyrir nokkrum árum. Húsnæðið er með góðum gluggum á framhliðinni og einnig á norðurhliðinni. Tveir inngangar eru að framanverðu inn í húsnæðið.
Nánari lýsing. Húsnæðið var allt endurgert fyrir nokkrum árum og er mjög bjart og snyrtilegt. Góð lofthæð er í húsnæðinu. Kerfisloft er í innri hluta húsnæðisins. Húsnæðið skiptist í opið verslunarrými fremst og innri hlutinn er gott opið rými með snyrtingu, kaffistofu og geymslu. Gólf eru flísalögð. Öflug loftræsting er húsinu.
Bjart og vistlegt húsnæði á frábærum stað. Mikil uppbygging á svæðinu. Til afhendingar við kaupsamning.
Upplýsingar gefa sölumenn Kjöreignar ehf., í síma 533-4040 eða kjoreign@kjoreign.is
Dan Wiium lögm. og lögg fasteignasali gsm. 896-4013 eða á dan@kjoreing.is
Ásta María Benónýsdóttir lögg. fasteignasali gsm. 897-8061 eða á asta@kjoreign.is

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna















