HÚSASJÁ

Lómasalir 16

01-0105 · 201 Kópavogi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
26 myndir

90 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2003

Byggingarár

3400 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Lyfta

Bílskúr

Hleðslustöð

Geymsla

Þvottahús



4 dagar á sölu

sell

76.900.000 kr

847.850 kr/m²

LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir snyrtilega 3. herbergja, 90.7 m2  íbúð þar af 7.1 m2 geymsla ,  útgengi út á stóra timburverönd með skjólveggjum með fallegu útsýni. Eigninni fylgir stæði í bílageymslu. Þvottahús er  innan íbúðar.  Sér inngangur er af hálflokuðum svölum, um sameiginlegt stigahús.

Húsið lítur vel út og árið 2018 var farið í eftirfarandi framkvæmdir:

- Múrviðgerðir, endursteining að hluta og sílaböðun á öllu húsinu.

- Þvottur og sílaböðun á steiningu sem ekki þurfti endurnýjun.

- Nýir vinklar í alla glugga og sleðar endunýjaðir eftir þörfum.

- Gluggar málaðir og ný vatnsbretti sett á.

- 2020 var skipt var um glugga í sameign sem snúa til suðurs , teppi á stigagangi endurnýjuð og hann málaður sem og hurðar í sameign.

- 2020  svalir í sameign málaðar , settar nýjar flísar og ný niðurfallsrör

- 2025 skipt um hurð í bílakjallara

- 2025 hús sílanborið

Nánari lýsing

Forsofa með flísalögðu gólfi, rúmgóður fataskápur.

Eldhús, borðstofa og stofa eru í opnu rými.

Eldhússinnrétting úr mahogany, gluggi við vask, tengi f. uppþvottavél, barborð. Mjög gott borðpláss, flísar á gólfi.

Borðstofa og stofa renna saman í eina heild og úr stofu er útgengt út á stóran afgirtan sólpall með frábæru útsýni.

Hjónaherbergi íbúðarinnar er rúmgott með góðu skápaplássi, snýr að garði.

Barnaherbergið er rúmgott og með fataskáp.

Baðherbergið með flísalögðu gólfi og veggjum,  baðkar með sturtu, vaskur í innréttingu og hliðarskápur.

Þvottahús með skolvaski í borði, tengi fyrir þvottavél og þurrkara,  flísar á gólfi.

Geymslan er staðsett á jarðhæð, rúmgóð og með hillum

Á gólfum í alrými, gangi og svefherbergjum er parket.

.

Húsgjöld eignarinnar eru 28.147 kr á mánuði, innifalið í húsgjöldum er allur almennur rekstur, hiti á íbúð, rafmagn í sameign, húseigandatrygging, þrif sameignar og þrif sorpgeymslu.

Bílastæði: Í lokaðri bílageymslu. Hleðslustöð fyrir rafmagnsbíl fylgir. Nýlegur opnari í bílageymslu

Sameignin er mjög snyrtileg. Bílastæði á lóð sem eru 24 eru í óskiptri sameign en hlutfallslegri sameign. Bílakjallari fylgir húsinu sem er lokaður og rafstýrður, hýsir 24 bílastæði.

Björt og rúmgóð, vel staðsett útsýnisíbúð með aflokuðum skjólsælum sólpalli, stutt er í alla þjónustu. Lómasalir 16 vel staðsett og stutt er í ýmsa þjónustu svo sem leikskóla, grunnskóla, menntaskóla, verslun, sund, líkamsrækt o.fl.  Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is

Kort af Lómasalir 16

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð