HÚSASJÁ

Efra-Sel

01-0101 · 846 Flúðum

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
41 myndir

145 m²

Stærð

3

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

1993

Byggingarár

Sérinngangur

Garður

Svalir

Bílskúr

Þvottahús

Heitur pottur



20 dagar á sölu

sell

68.900.000 kr

476.817 kr/m²

Loftur Erlingsson löggiltur fasteignasali s.896 9565 og Hús fasteignasala kynna í einkasölu:

- - TÆKIFÆRI Í FERÐAÞJÓNUSTU - -

Fjögurra herbergja, 144,5fm gistiheimili / einbýlishús og bílskúr á golfvellinum á Seli í Hrunamannahreppi, rétt við Flúði.

Húsið er skráð sem gistiheimili með leyfi fyrir 8 manns en svefnaðstöðu fyrir 5 eins og er.  Möguleiki að bæta við tveimur herbergjum í bílskúrnum.

Allt innbú og tæki sem tilheyra rekstri gistihússins fylgja við sölu sem og aðgangar að bókunar- og skráningarsíðum á Airbnb og Booking.

Úr forstofu er hurð til vinstri fram í bílskúr,  þvottahús og annað baðherbergi hússins beint af augum og gangur til hægri inn í stofu og eldhús í sameiginlegu opnu rými, og svefnherbergin þrjú þar innst, annað baðherbergi inn af einu þeirra.

Forstofa er með dúka-flísum á gólfi og hljóðdempandi plötum á veggjum að hluta.

Stofa og eldhús í sameiginlegu opnu rými, dúka-flísar á gólfum, innrétting frá IKEA í eldhúsi, vönduð tæki og upptekið loft með þakglugga.

Svefnherbergi 1 með vínilparketi á gólfi og baðherbergi inn af með sturtu með forsteyptum botni og glerþili, handklæðaofni, upphengdu klósetti og vaski á skúffuskáp. Heilsoðinn dúkur á gólfi.

Svefnherbergi 2 heldur minna og með vínilparketi á gólfi.

Svefnherbergi 3 minnst af herbergjunum, vínilparket á gólfi og rennihurð til að loka.

Baðherbergi í forstofu er með sturtu með forsteyptum botni og glerþili, handklæðaofni, upphengdu klósetti og vaski á skúffuskáp. Heilsoðinn dúkur á gólfi.

Þvottahús með skolvaski í vinnuborði, heilsoðinn dúkur á gólfi. Hægt að útbúa hurð út á bak við hús þar.

Húsið er með timburgólfi en stendur á steyptum sökklum, skriðkjallari undir.

Bílskúr með lægri gólfplötu en húsið og steinsteyptri,  góð lofthæð þar. Flísar á gólfi og veggir hvítmálaðir.

Að utan er húsið klætt með liggjandi CANEXEL klæðningu, gluggar og hurðir úr tré og bárujárn á þaki.

Stór pallur með heitum potti og golfvöllurinn svo þar fyrir neðan.

Upphaflega var húsið töluvert stærra og byggt á öðrum stað, en var svo hlutað í sundur og fært á núverandi stað árið 2001, stofan stækkuð og bílskúrnum bætt við.

Á Flúðum er Krambúð, heilsugæsla og von á apoteki, matsölustaðir, sundlaug, vínbúð, Sólskinsbúðin og Gamla laugin og endalausir útivistarmöguleikar.

- Hér er á ferðinni gott tækifæri á léttum rekstri eða til að eiga athvarf á golfvelli með útleigumöguleika.  -

-- VINSAMLEGAST BÓKIÐ EINKASKOÐUN --

Nánari upplýsingar veitir Loftur Erlingsson löggiltur fasteignasali

s. 896 9565  -   loftur@husfasteign.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna:

1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati, (0,4% fyrstu kaup)  lögaðilar 1,6%

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð

Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Hús Fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita jafnvel til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Kort af Efra-Sel

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð