HÚSASJÁ

Strandvegur 55

01-0102 · 900 Vestmannaeyjum

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
22 myndir

63 m²

Stærð

1

Herbergi

1

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1915

Byggingarár

553 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Friðað



227 dagar á sölu

sell

37.900.000 kr

601.587 kr/m²

Halldóra Kristín Ágústsdóttir löggiltur fasteignasali sími 8611105- dora@eyjaeignir og Eyjaeignir fasteignasala kynna í einkasölu: Strandveg 55  í Vestmannaeyjum sem er björt og glæsileg íbúð á jarðhæð í þríbýli á besta stað miðsvæðis í bænum.  Aðkoma er að sunnan, með bílastæði.  Húsið er byggt úr steini ( neðri hæð) árið 1915 og er eignin 63 m2.  Eignin var töluvert endurnýjuð að innan  árið 2022, gólfefni, eldhús, baðherbergi, innihurðar. Gólfhiti er á allri íbúðinni.   Að utan var eignin einangruð og klædd með hvítri álklæðningu. Búið er að helluleggja stétt fyrir framan eignina með Ecoraster. Sameiginlegt lagnarými þar sem rafmagn er aðskilið á milli eigna.  Frábær staðsetning á besta stað í miðbænum!

BÓKIÐ SKOÐUN á netfangið dora@eyjaeignir.is eða í síma 8611105

Nánari lýsing:

Forstofa: Parket á gólfi, fatahengi, nýleg útidyrahurð

Stofa: parket á gólfi

Eldhús: Parket á gólfi, nýleg hvít Ikea innrétting, nýleg tæki

Baðherbergi: Flísar í hólf og gólf, walk in sturta, vaskur, wc, baðinnrétting, opnanlegur gluggi, gólfhiti, tengi fyrir þvottavél og þurrkara

Herbergi: Parket á gólfi á gólfi, góður skápur

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.

1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati. (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kauptilboði.

Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Eyjaeignir fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.

Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Kort af Strandvegur 55

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu