Naustabryggja 32
03-0101 · 110 Reykjavík



142 dagar á sölu
129.000.000 kr
559.896 kr/m²
Borgir s. 588-2030 kynna: Laust til afhendingar:
Mjög gott og vandað raðhús á þremur hæðum við sjóinn í Naustabryggju í Reykjavík.
Jarðhæð er 75.8 fermetrar að stærð. Gengið er inn sjávarmeginn á jarðhæð.
Söluyfrlit
Forstofa björt með ljósum flísum.
Gangur flísalagður, liggur að stiga upp á aðra hæð og að gangi framan svefnherbergis, baðs og geymslu.
Svefnherbergi, stórt, parketlagt með stórum gluggum sjávarmeginn. Baðherbergi, flíslalagt gólf, sturtuklefi.Geymsla, rúmgóð með lökkuðu gólfi.
Bílskúr, innangengt frá gangi í 36,0 fermetrar bílskúr með stórri innkeyrsluhurð. Gólf lakkað, rennandi heitt og kalt vatn og göngudyr.
Önnur hæð hússins er 63,1 fermetri að stærð
Gengið er um steyptan og parketlagðan stiga úr forstofu upp á aðra hæð. Hæðin er að mestu opið svæði. Gólf parketlagt.
Eldhús opið með eyju og ljósri innréttingu. Uppþvottavél og innbyggður ísskápur.
Borðstofurými með gólfsíðum gluggum til suðurs þar sem opnast út á 26 fermetra svalir. Stofan með stórum gluggum til norðurs.
Fallegt útsýni yfir sjóinn og Esjuna. Gestasnyrting er flísalögð.
Þriðja hæð hússins er 63,1 fermetri að stærð.
Gengið er um steyptan og parketlagðan stiga frá stofunni upp á þriðju hæð. Mikið opið svæði, hátt til lofts.
Svefnherbergi, rúmgott, parketlagt og inn af því er fataherbergi. Gluggar til suðurs.
Baðherbergi, flísalagt gólf og veggir, baðkar með sturtuaðstöðu. Þvottaherbergi flísalagt gólf.
Stórt hol með gluggum til norðurs og mikili lofthæð. Þar var á teikningu gert ráð fyrir svefnherbergi.
Fjórða hæðin
Upp frá þriðju hæðinn er léttur stigi upp á opið loftrými sem hægt er að nýta sem geymslu eða íverusvæði.
Innréttingar eru upprunalegar frá 2002. Rafmagn og útiljós eru nýlega yfirfarin.
Gler yfirfarið og skipt um það sem þurfti. Þak nýlega skoðað og er í lagi.
Húsið var klætt með báruáli og báruál er á þaki. Neðri hluti hússins var endurnýjaður 2017.
Lóðin er fullfrágengin. Húsinu fylgir 4.75 bílastæði á sameiginlegu stæði sunnan við húsið.
Nánari upplýsingar veitir Ægir s. 896-8030 eða aegir@borgir.is
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Vill Borgir því skora væntanlega kaupendur á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bæra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 70.000 mvsk.

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna





























