Hraunás 10
01-0101 · 210 Garðabæ



27 dagar á sölu
229.000.000 kr
856.075 kr/m²
Fasteignasalan TORG kynnir: Virkilega glæsilegt parhús með mikilli lofthæð og glæsilegu útsýni við Hraunás 10. Eignin er skráð 267,5 fm og skiptist í fjögur rúmgóð svefnherbergi, forstofuherbergi, alrými sem rúmar borðstofu, setustofu og eldhús, þrjú baðherbergi, sjónvarpshol, stórt þvottahús með fataherbergi og innbyggðan bílskúr. Húsið er staðsett á frábærum útsýnisstað innst í botnlanga við Hraunás í Garðabæ. Allar nánari upplýsingar veitir Darri Örn Hilmarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 767-0000 eða í tölvupósti: darri@fstorg.is
Nánari lýsing:
Efri hæð: Komið er inn í flísalagt anddyri. Frá anddyri er gengið inn í forstofuherbergi sem í dag er notað sem skrifstofa. Alrýmið er bjart og fallegt með gólfsíðum gluggum að hluta og fallegu útsýni út á hraunið, að Álftanesi, út á sjóinn og að Snæfellsjökli. Stofan og borðstofan er virkilega glæsileg með mikilli lofthæð, innfelldri lýsingu og fallegum arinn. Frá stofu er gengið út á stórar svalir til suðurs og suð-vesturs. Eldhúsið var nýlega endurnýjað og er virkilega fallegt með sérsmíðuðum innréttingum frá HTH og taj mahal steini frá S. Helgasyni. Gestasalernið er með upphengdu salerni og fallegri innréttingu með handlaug.
Neðri hæð: Gengið er úr holi efri hæðar hússins niður á neðri hæð um teppalagðan stiga með mjög fallegu handriði úr stáli, gleri og viði. Við tekur rúmgott sjónvarpshol með útgangi út á skjólsæla viðarverönd til suðurs og vesturs með skjólvegg. Hjónaherbergi er mjög rúmgott með innbyggðum fataskápum. Inn af hjónaherbergi er rúmgott baðherbergi með sturtu, upphengdu salerni og fallegri innréttingu með handlaug. Barnaherbergin eru þrjú, öll nokkuð rúmgóð með fataskápum. Baðherbergið á neðri hæðinni er með baðkari, upphengdu salerni og fallegri innréttingu með handlaug. Þvottaherbergið er mjög stórt og veglegt með miklum innréttingum, vask og vinnuborði. Í hluta þvottaherbergis er fataherbergi með góðum innréttingum. Bílskúrinn er með flísalagt gólf, þakglugga, gluggum og göngudyr. Lóðið er fullfrágengin og glæsileg en viðhaldslítil með verönd, tyrfðri flöt og trjágróðri neðan við hús. Tvö hellulögð bílastæði með hitalögnum er fyrir framan húsið og þrjú hellulögð gestastæði eru þar við hliðina.
Allar nánari upplýsingar veitir Darri Örn Hilmarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 767-0000 eða í tölvupósti: darri@fstorg.is

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna





































