HÚSASJÁ

Hjallatangi 16

01-0101 · 340 Stykkishólmi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
74 myndir

171 m²

Stærð

3

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2001

Byggingarár

Sérinngangur

Garður

Bílskúr

Bílastæði

Geymsla

Þvottahús

Heitur pottur



13 dagar á sölu

sell

94.500.000 kr

478.481 kr/m²

Miklaborg kynnir: Glæsilegt einbýli á einni hæð við sjávarsíðuna. Hér gefst tækifæri til að eignast sérlega vel skipulagt og bjart einbýlishús á einni hæð, þar sem samspil þæginda og náttúru fær að njóta sín. Húsið er byggt árið 2001 og stendur á eftirsóknarverðri sjávarlóð þaðan sem skemmtilegt og kyrrlátt útsýni blasir við.

Nánari upplýsingar veitir Jón Rafn fasteignasali í síma 695-5520 eða jon@miklaborg.is

Eignin er samtals 196,7 fm, sem skiptist í 156,4 fm íbúðarhluta og 40,3 fm sambyggðan bílskúr. Skipulagið er opið og bjart, hannað með nútímaþarfir í huga.

Anddyri og alrými: Gengið er inn í flísalagða forstofu. Alrýmið er hjarta hússins en þar mætast eldhús, björt stofa og rúmgott hol. Parket er á gólfum í alrými og herbergjum, en gólfhiti er í öllu húsinu sem tryggir jafnan og þægilegan hita.

Eldhús og þvottahús: Eldhúsið er búið vönduðum innréttingum og flísum á gólfi. Inn af eldhúsi er þvottahús með praktískum innréttingum sem auðvelda alla skipulagningu.

Svefnherbergi: Þrjú rúmgóð svefnherbergi eru í húsinu, öll með skápum. Innaf hjónaherbergi er veglegt fataherbergi.

Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, útbúið bæði með sturtu og hornbaðkari – fullkominn staður til slökunar.

Aukarými og bílskúr: Milligangur með flísum tengir íbúðina við bílskúrinn, en þar er einnig að finna lítið herbergi sem nýtist frábærlega sem vinnuherbergi eða geymsla. Bílskúrinn er rúmgóður með sjálfvirkri hurð. Lloftaklæðningu ólokið).

Garður og umhverfiÚtisvæðið er sannkölluð vin fyrir fjölskylduna. Skjólgóð viðarverönd með heitum potti. Lóðin er fullfrágengin með matjurtagarði fyrir áhugafólk um ræktun. Framan við húsið er steypt bílastæði og hellulögð stétt. Hitalögn er í bílastæði (ótengd).

Þetta er eign fyrir vandláta sem leita að rúmgóðu fjölskylduhúsi á einstöku stað þar sem stutt er í náttúruna og útsýnið er í aðalhlutverki.

Nánari upplýsingar veitir Jón Rafn fasteignasali í síma 695-5520 eða jon@miklaborg.is

www.jonrafn.is

Kort af Hjallatangi 16

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð