Reynihraun 2
06-0102 · 311 Borgarnesi



14 dagar á sölu
18.800.000 kr
438.228 kr/m²
Nes fasteignasala ehf kynnir eignina:
Reynihraun 2, Bifröst, 311 Borgarbyggð.
Um er að ræða 2ja herbergja raðhús byggt árið 2002 úr steinsteyptum einingum. Eignin er 42,9 fm að stærð skv. skráningu HMS. Sameiginleg geymsla er í miðu hússins sem er skipt niður í afmörkuð geymslusvæði fyrir hverja eign. Geymslusvæði eignarinnar er um 5 fm að stærð og utan skráðra fermetra. Hitaveita er á svæðinu.
Nánari lýsing:
Stofa og eldhús mynda alrými. Eldhúsinnrétting með eldavél í innréttingu. Stæði fyrir þvottavél í líítilli innréttingu á gangi. Baðherbergi er endurnýjað með dúkaflísum á gólfi og fibo-tresbo á veggjum, upphengdur vaskur í innréttingu, sturtuklefi og salerni. Svefnherbergi er bjart og rúmgott.
Eignin hefur nýlega verið nokkuð endurnýjuð, nýtt gólfefni á öllum gólfum, parket á öllum gólfum nema dúkflísar í baðherbergi, baðherbergi mikið endurnýjað, íbúðin máluð að innan og utan.
Hér er um mjög áhugaverða eign að ræða hvort sem er til heilsársbúsetu eða til frístundanota. Bifröst er í fögru umhverfi. Óþrjótandi möguleikar eru til útivistar með vinsælum gönguleiðum að Hreðavatni, á Grábrók og að fossinum Glanna. Margvísleg þjónusta er á svæðinu s.s. leikskóli, hótel með veitingastað og golfvöllur.
Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.
Nes fasteignasala. Borgarbraut 57, 310 Borgarnesi.

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna








