Fossvegur 6
01-0205 · 800 Selfossi



256 dagar á sölu
53.500.000 kr
609.339 kr/m²
ÁRBORGIR SELFOSSI S 482 4800 kynna:
Falleg og vel umgengin endaíbúð á annarri hæð í snyrtilegu fjölbýli á Selfossi.
Húsið er staðsteypt, klætt að utan með lituðu áli.
Íbúðin skiptist í forstofu, 2 svefnherbergi, geymslu með glugga (getur nýst sem 3ja herbergið), baðherbergi, stofu og eldhús.
Flísar eru á gólfi í forstofu og þar er fínn skápur. Herbergin eru parketlögð og er stór fataskápur í hjónaherbergi. Parket er á geymslunni. Baðherbergi er flísalagt bæði gólf og veggir, þar er sturta, innrétting og aðstaða fyrir þvottavél. Eldhúsið er opið inn í stofuna, þar er fín innrétting og er parket á gólfi. Úr stofu er útgengt á svalir.
Sameiginleg hjóla/vagna geymsla er í kjallara, sameign er snyrtileg. Lyfta er í húsinu.
Lóðið er frágengin og bílaplan er malbikað.
Sameginleg hleðslustöð
Nánari upplýsingar á skrifstofu Árborga.
arborgir@arborgir.is

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður við sambærilegar eignir














