HÚSASJÁ

Klyfjasel 2

01-0001 · 109 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
27 myndir

116 m²

Stærð

1

Herbergi

3

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

1985

Byggingarár

736 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Geymsla



392 dagar á sölu

sell

68.900.000 kr

596.021 kr/m²

Höfði fasteignasala kynnir: Neðri sérhæð (jarðhæð) í tvíbýlishúsi,  115,6 fm íbúð sem búið er að breyta í tvær íbúðir við Klyfjasel 2 í Reykjavík.

Sérinngangur í báðar íbúðir.

Stærri íbúðin  sem er 3ja herbergja er um 85 fm og minni íbúðin sem er stúdíóíbúð er um 30 fm eða samtals 115,6 fm.

Íbúðirnar eru vel útbúnar og hentuga til útleigu.

Lýsing:

3ja herbergja íbúð:

Eldhús er bjart með dökkri viðarinnréttingu, keramik helluborði, ofn á vegg og stórum glugga.

Tvö svefnherbergi með fataskápum,

Flísalagt baðherbergi með dökkri viðarinnréttingu, hvítum tækjum, sturtu í baðkar og afstúkaðri aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara.

Geymsla er innan íbúðar.

Innihurður, innréttingar og fataskápar eru úr dökkum við.

Gólfefni: dökkt viðarlíkiparket á gólfum hjónaherbergi þar er ljóst harðparket.

Stúdíóíbúð:

Er með sérinngangi utanfrá þar sem gengið er inn í forstofu þar sem inntök og hitalagnir eru innaf. Úr forstofunni er gengið inn í stúdíóíbúðina sjálfa.

Opið rými með ljósri viðarinnréttingu í öðrum enda íbúðarinnar og stofu og svefnrými í hinum endanum.

Baðherbergi er með sturtuklefa og tengingu fyrir þvottavél.

Ljósar innihurðir.

Gólfefni: Ljóst viðarlíkiparket og flísar.

Sameign: Vatns og rafmagnsinntök innaf forstofu stúdíóíbúðar. Innbyggð ruslageymsla og dekkjageymsla undir útistiga upp á efri sérhæðina.

Lóð er tyrfð og viðarpallur er fyrir framan íbúðina og lítill viðarpallur í norðvestur horni lóðar, hugsaður fyrir stúdíóíbúð. Eignin þarfnast viðhalds og er væntanlegum kaupendum bent á að skoða eignina vel.

Uppl. gefur Þórarinn Friðriksson lögg.fasteignasali í síma 844-6353 eða thorarinn@hofdi.is

Kort af Klyfjasel 2

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð