Sóltún 15
02-0101 · 800 Selfossi



445 dagar á sölu
78.500.000 kr
557.925 kr/m²
Litla Fasteignasalan s: 482-9900 kynnir -
Snyrtilegt 4 herbergja raðhús ásamt bílskúr
með yfirbyggðri verönd og stórum lokuðum afgirtum palli.
Samtal 140,7 m2 þar af er bílskúr 21,5 m2
Lýsing eignar:
Forstofa er rúmgóð með fataskáp og flísum á gólfi.
Eldhús með snyrtilegri innréttingu, helluborð, bakaraofn í vinnuhæð, háfur og tengi fyrir uppvöskunarvél.
Stofa er rúmgóð og björt með ljósum flísum á gólfi, útgengt er út á pall úr stofu. Borðstofa og stofa eru í sameiginlegu rými.
Hjónaherbergi með stórum fataskáp og parket á gólfi.
Svefnherbergi 2 með fataskáp og parket á gólfi.
Svefnherbergi 3 er forstofuherbergi með parket á gólfi.
Baðherbergi er rúmgott með baðkari, sturtuklefa, flísum á gólfi og veggjum, með ljósri innréttingu og handklæðaofni.
Þvottahús með tengi fyrir þvottavél og þurrkara, innan gengt í bílskúr.
Bílskúr með flísum á gólfi, bílskúrshurð og bílskúrshurðaopnari. Aðgengi á háaloft úr bílskúr.
Í bakgarði er stór pallur með skjólveggjum sem snýr til suðvesturs.
Þar er einnig yfirbyggð verönd og lítill geymsluskúr.
​​​​​Innkeyrsla er hellulögð með snjóbræðslukerfi.
Sjá staðsetningu
Örskammt frá leikskólanum Árbæ og stutt gönguleið að sækja Nettó og nýja miðbæinn.
Nánari upplýsingar veitir
Sigþrúður J. Tómasdóttir
sími 892-0099 sissu@litlafasteignasalan.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila
Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Litla Fasteignasalan benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna




































