HÚSASJÁ

Þrastarás 22

01-0101 · 221 Hafnarfirði

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
38 myndir

190 m²

Stærð

4

Herbergi

4

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

2001

Byggingarár

338 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús

Heitur pottur



61 dagar á sölu

sell

152.900.000 kr

805.585 kr/m²

Fallegt og mikið endurnýjað raðhús á tveimur hæðum á þessum góða stað í Áslandinu í Hafnarfirði.  Gott skipulag er á eigninni, stór verönd með heitum potti.  Eignin er alls 189,8 fm að stærð sem skiptist þannig að efri hæðin er 87,4 fm, neðri hæðin 67,5 fm og bílskúrinn 27,9 fm.

Efri hæðin:  Forstofa með flísum á gólfi og fatahengi, gólfhiti.  Hol með parket á gólfi.  Stofa og borðstofa með parket á gólfi og útg. út á rúmgóðar svalir í suð/vesturátt.  Eldhúsið er opið í stofuna, falleg nýleg innrétting og tæki, parket á gólfi, eyja, stæði f. uppþv.vél, vifta/háfur í borðplötu, stæði f. tvöfaldan ísskáp, búrskápur, tveir ofnar í vinnuhæð.  Baðherbergi með flísum á gólfi og vegg að hluta, innrétting, sturta.  Herbergi með parket á gólfi og skápum.

Neðri hæðin:  Steyptur stigi á milli hæða með teppi, komið í hol/sjónvarpskrók með parket á gólfi.  Þrjú herbergi með parket á gólfi og skápum, útg. út á verönd með skjólveggjum og heitum potti úr einu herberginu.   Baðherbergi með flísum á gólfi og vegg, innrétting, sturta, gólfhiti. Þvottahús með flisum á gólfi, innrétting, innaf þvottahúsi er geymsla undir stiganum.

Bílskúr: Innangengt í bílskúr úr forstofunni, flísar á gólfi, milliloft, hiti, vatn, rafmagn og hurðaopnari.

Að sögn eiganda þá hefur verið endurnýjuð undanfarin ár s.s.

Gólfefni endurnýjað okt 2021: 13mm viðarparket - Eik frá LM flooring (Parki)

Teppi lagt í stiga nóv 2021: Caruso teppi frá Parki

Eldhúsinnrétting sérsmíðuð af Fagus árið 2022 - reykt eik.

Steinn í eldhúsi - Quartz frá Steinprýði

Eldhústæki: Siemens studio line

Rafdrifinn háfur í eyju líka Siemens studio line

Vínkælir í eyju frá Temptech

Tveir ofnar, einn gufuofn og hinn bæði venjulegur og örbylgju

Grohe blöndunartæki í eldhúsi

Tækjaskápur með innbyggðri lýsingu

Sérsmíðaður fataskápur úr reyktri eik (Fagus)

Sérsmíðuð Rennihurð úr reyktri eik (Fagus)

Sérsmíðaður skóskápur í anddyri (Fagus)

Þvottahúsinnrétting (Fagus) endurn. 2022

Gira esprit tenglar og rofar (Vandaðir og fallegir)

Bílskúr með millilofti

Nýleg led lýsing í stofu og eldhúsi

Lóð er ræktuð, hellulagt bílaplan.

Virkilega góð eign á frábærum stað, stutt í leik- og grunnskóla svo og út í náttúruna.

Nánari upplýsingar veitir Eiríkur Svanur Sigfússon löggiltur fasteignasali í s. 862-3377 / eirikur@as.is og Svala Haraldsdóttir löggiltur fasteignasali í s. 820-9699 / svala@as.is

Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.

www.facebook.com/asfasteignasala

www.instagram.com/as_fasteignasala

www.as.is

Kort af Þrastarás 22

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð