HÚSASJÁ

Ástjörn 7

01-0202 · 800 Selfossi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
18 myndir

69 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2001

Byggingarár

2711 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Geymsla

Þvottahús



45 dagar á sölu

sell

48.900.000 kr

705.628 kr/m²

Hafsteinn Þorvaldsson löggiltur fasteignasali 891 8891 og HÚS fasteignasala kynna í einkasölu snyrtilega íbúð á efri hæð í Ástjörn 7, íbúð 202.  Vel skipulögð og mikið endurnýjuð, þriggja herbergja 69,3 fm íbúð með sérinngangi. Frábær fyrstu kaup og flott staðsetning á Selfossi.

Húsið var byggt/steypt árið 2001. Góðar svalir.

Innra skipulag: Forstofa með fataskáp. Eldhús og stofa í opnu rými, snyrtileg endurnýjuð innrétting. Innfelldur ísskápur. Útgengt á svalir sem snúa til suðurs. Tvö svefnherbergi bæði með fataskápum. Flísalagt endurnýjað baðherbergi með sturtu m/glervegg, innréttingu, handklæðaofni og upphengdu wc.

Gott þvottahús og geymsla innan íbúðar. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla á jarðhæð.

Virkilega snyrtileg íbúð sem hefur talsvert verið endurnýjuð á undanförnum árum og má þar nefna gólfefni, baðherbergi og eldhús. Upptekið loft í allri íbúðinni. Stórt bílaplan.

Góð og snyrtilegt íbúð. Stutt í skóla og leikskóla.

Nánari upplýsingar veita Hafsteinn Þorvaldsson viðskiptafræðingur/löggiltur fasteigna,- og skipasali s. 891-8891, hafsteinn@husfasteign.is

,,Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir"

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.

1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati.   (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunnar, breytilegt. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.

Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Kort af Ástjörn 7

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu