HÚSASJÁ

Ásabraut 13

01-0101 · 300 Akranesi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
35 myndir

200 m²

Stærð

4

Herbergi

4

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2001

Byggingarár

752 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Bílskúr

Þvottahús

Heitur pottur



14 dagar á sölu

sell

119.500.000 kr

596.307 kr/m²

Valfell fasteignamiðlun og ráðgjöf  sími 570-4824.

Afhending gæti orðið fljótlega.

Rúmgott og vel staðsett 200,4 fm einbýlishús á einni hæð með innbyggðum 31,4 fm bílskúr. Húsið er staðsett í botnlanga í hverfi sunnanmegin við golfvöllinn.

Innan hússins eru fjögur rúmgóð svefnherbergi, 3 með fataskápum. Forstofan er flísalögð. eldhús, sjónvarps hol, stofa og borðstofa mynda eitt alrými, upptekin loft með eikarklæðningu, gengið úr stofu á suðursólpall og úr borðstofu á vestursólpall með heitum potti og skjólgirðingu. ( hitastýring í bílskúr )

Eldhús með stórri og plássmikilli innréttingu, tengi fyrir uppþvottavél og rúmgóður borðkrókur ( uppþvottavél og ísskápur fylgja með ).  Baðherbergi, flísalagt í hólf og gólf, baðkar, innrétting og sturtuklefi. Inn af forstofu er flísalagt þvottahús, og þaðan gengið í flísalagðan bílskúr. Yfir bílskúr er gott geymslupláss.

Gegnheilt ( olíuborið ) eikarparket á öllum gólfum nema forstofu, eldhúsi og forstofu en þar eru flísar og hiti í gólfi. Hiti í innkeyrslu og varmaskiptir á neysluvatni.

Í heild vel með farið hús með sérlega góðri staðsetningu í fjölskyldu og barnvænu umhverfi.

Endurbætur á liðnum árum:

Rafmagnstafla, 2025,

Ídregið rafmagn, tenglar og rofar 2025

LED lýsing sett upp í húsinu. ( snjallstýring í appi  )

Járn á þaki málað 2021

Hús sílanborið 2021

Bílskúrshurð 2018.

Bakaraofn, helluborð ( span ) ísskápur og uppþvottavél 2023

Rafmagnstafla 2024 endurnýjuð og 3ja fasa rafmagn í bílskúr. Hleðslustöð fyrir bíl í innkeyrslu. ( hleðslustöðin sjálf fylgir með )Allar nánari uppl. veitir Hákon á hakon@valfell.is

Kort af Ásabraut 13

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð