HÚSASJÁ

Arnarklettur 26

01-0201 · 310 Borgarnesi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
31 myndir

99 m²

Stærð

5

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2007

Byggingarár

2052 m²

Lóð

Svalir

Lyfta

Geymsla

Þvottahús



22 dagar á sölu

sell

59.900.000 kr

606.890 kr/m²

Nes fasteignasala ehf kynnir í einkasölu eignina:

Arnarklettur 26, 310 Borgarnesi.

Um er að ræða mjög rúmgóða 4 herbergja íbúð á 2. hæð í fjölbýlishúsi merkt 0201.  Íbúðin er 98.7 fm að stærð samkvæmt skráningu HMS, þar af er geymsla 7.4 fm. Inngangur er sameiginlegur, lyfta, sér geymsla og sameiginleg hjóla og vagnageymsla í kjallara fylgir íbúðinni. Bílastæði eru malbikuð og lóðin  frágengin.

Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning!

Nánari lýsing:

Gengið er um inngang af bílastæði inná 2 hæð hússins. Íbúðin skiptist í forstofu/hol, þvottahús, baðherbergi, 3 svefnherbergi og alrými sem samanstendur af eldhúsi, borðstofu og stofu. Gengið er úr stofu út á svalirnar.

Forstofa/hol: Parket á gólfi, fataskápur.

Þvottahús: Dúkur á gólfi, vaskur í borði.

Baðherbergi: Flísar eru í hólf og gólf, upphengt salerni og sturta.

Svefnherbergi: Eru 3. Parket á gólfum, fataskápar í öllum herbegjum.

Eldhús: Parket á gólfi, innrétting eik. Helluborð og bakarofn. Stæði í innréttingu fyrir uppþvottavél og ísskáp

Stofa og borðstofa: Björt og rúmgóð með parket á gólfum. Gengið er úr stofu út á svalirsem snúa mót suð-vestri.

Svalir: Eru rúmgóðar með miklu útsýni.

Hér er um mjög rúmgóða og vel staðsetta eign að ræða.

Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.

Nes fasteignasala tekur ekki umsýslugjald af kaupendum.

Kostnaður kaupanda:

Stimpilgjald skv. 5. gr. laga nr. 138/2013 um stimpilgjald, 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga. 0,4% við fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.

Þinglýsingargjald kr. 3.800,- á hvert skjal.

Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá.

Engin umsýsluþóknun.

Kort af Arnarklettur 26

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð