Jötnaborgir 6
02-0302 · 112 Reykjavík



44 dagar á sölu
71.900.000 kr
787.514 kr/m²
Hrafnkell Pálmi og Atli á Lind kynna þessa björtu og vel skipulögðu þriggja herbergja íbúð á 3. (efstu) hæð með flottu útsýni.
Húsið stendur í rólegri götu við Jötnaborgir 6 í Reykjavík
Þvottahúsið er innan íbúðar og góðar svalir til suðurs.
Stutt er í skóla, alla helstu þjónustu og fallegar gönguleiðir.
Eignin er laus við kaupsamning.
Nánari lýsing:
Anddyrið er með flísum á gólfi og góðum fataskápum.
Stofan og borðstofan mynda gott opið rými með parket á gólfi, stórum gluggum og útgengt á svalirnar. Rennihurð er út á rúmgóðar svalir sem snúa til suðurs.
Eldhúsið er með flísum á gólfi, góðri innréttingu með miklu vinnurými og geymsluplássi. Góður eldhúskrókur undir glugga með fallegu útsýni til norðurs.
Svefnherbergi I er rúmgott með parket á gólfi og góðum fataskápum. Gluggi til suðurs.
Svefnherbergi II er með parket á gólfi og góðum fataskápum.Gluggi til norðurs
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf með góðri innréttingu, handklæðaofn og baðkar með sturtuaðstöðu.
Þvottahúsið er innan íbúðar með flísum á gólfi og gott rými fyrir þvottavél og þurrkara.
Svalirnar eru rúmgóðar með útsýni að ósnortinni náttúru til suðurs.
Sér geymsla á jarðhæð í sameign 6,9 fm.
Hjóla- og vagnageymsla á jarðhæð.
Steinhús á þremur hæðum.
Tilheyrir heildarhúsinu Jötnaborgir 4-6.
Eignahluti í matshluta er 26,37 en í heild 13,18%.
Við Jötnaborgir 6 eru 4 íbúðir.
Jötnaborgir 6, 112 Reykjavík, nánar tiltekið eign merkt 03-02, fastanúmer 225-1035 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Eignin Jötnaborgir 6 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 225-1035, birt stærð 91.3 fm.
Nánari upplýsingar:
Atli Pálmason Löggiltur fasteignasali / 662 4252 / atli@fastlind.is
Hrafnkell P. H. Pálmason Löggiltur fasteignasali / 690 8236 / hrafnkell@fastlind.is.
-----------------------------------------------------------------------
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila
Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna






























