HÚSASJÁ

Furugrund 22

01-0101 · 800 Selfossi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
44 myndir

158 m²

Stærð

4

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2000

Byggingarár

1046 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Geymsla

Þvottahús

Heitur pottur



39 dagar á sölu

sell

85.400.000 kr

539.482 kr/m²

Hús fasteignasala og Snorri Sigurfinnsson löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu. Furugrund 22. Gott tæplega 160 fm parhús í vinsælu hverfi. Stórt malbikað bílastæði, steypt kerru/vagnastæði, sólpallur með heitum potti og upphitað garðhús. Gott innra skipulag í húsinu.

Húsið er steníklætt timburhús byggt 2000. 158,3 fm. Þ.a. bílskúr 32,2 fm. Gróin og snyrtileg lóð. Húsi er vel viðhaldið að utan. Þak og gluggar í góðu ástandi.

Innra skipulag. Flísalögð forstofa með fataskáp, Flísalagt hol og eldhús með rúmgóðri innréttingu og borðkróki. Rúmgóð borðstofa og stofa í framhaldi af holi, parket á gólfi. Hurð út á aflokaðan sólpall. Hitaveitu pottur.

Í húsinu eru þrjú svefnherbergi. Tvö þeirra eru 9 fm með fataskápum og annað þeirra er með nýlegu harðparketi. Hjónaherbergi er tæpir 13 fm með nýlegu parketi og stórum fataskápum. Innangengt úr hjónaherbegi á baðherbergið sem er flísalagt, með innréttingu og stórri sturtu.

Flísalagt þvottahús og þaðan innangengt í bílskúr, nýr hurðaopnari, geymsluloft og geymsla innst. Gönguhurðir að framan og aftan. Í bakgarði er garðhúsið með rafmagni og hita.

Hiti er í gólfum í eldhúsi holi og baðherbergi.

Áhugaverð eign á góðum stað.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.

1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati og 1,6% fyrir lögaðila. 0,4% fyrir fyrstu kaupendur.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu

Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.

Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Kort af Furugrund 22

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu