HÚSASJÁ

Fjárhústunga 12

01-0101 · 320 Reykholti í Borgarfirði

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
31 myndir

86 m²

Stærð

4

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2000

Byggingarár

Sérinngangur

Garður

Svalir

Geymsla

Þvottahús

Heitur pottur



593 dagar á sölu

sell

51.500.000 kr

600.933 kr/m²

Miklaborg kynnir: Fjárshústunga 12, Borgarbyggð - 90 mín akstur frá Reykjavík. Heilsárshús í Borgarfirði - í landi Stóra-Áss - í nágrenni Húsafells og Hraunfossa/Barnafossa.

Vel byggður og hlýlegur bústaður með góðri útiaðstöðu og stórri verönd á kjarri vaxinni lóð. 

Eignarlóð - hitaveita - heitur pottur.

Parket og dúkur á gólfum.

Góð staðsetning, innst í botnlanga.

Nánari lýsing:

Þegar inn er komið tekur við forstofa, fatahengi - gangur.

Fjögur svefnherbergi. Tvö herbergi með tvíbreiðum rúmum. Tvö koju herbergi.

Stofa, borðstofa og eldhús saman í opnu rými.

Góð eldhúsinnrétting með góðum tækjum. Uppþvottavél fylgir.

Baðherbergi m/sturtuklefa og innréttingu. Útgengt þaðan út á pall og beint í pottinn.

Geymsla/þvottahús ásamt hillum.

Í heildina góður bústaður með góðu innra skipulagi.

Ásgil er í göngufæri frá bústaðnum. Um 10 mínútna akstur í Húsafell þar sem er hótel, sundlaug og golfvöllur ásamt ýmiss konar þjónustu.

Langjökull er í næsta nágrenni og stutt í veiði.

Ótakmarkað heitt vatn frá hitaveitu landeiganda - 200 þús greitt á ári fyrir heitt og kalt vatn.

Bústaðurinn er byggður árið 2000 á 1/2 hektara kjarrivaxinni eignarlóð.

Nánari upplýsingar gefur Gústaf Adolf lgf., gustaf@miklaborg.is / 895-7205.

Kort af Fjárhústunga 12

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30Mynd 31
Fjárhústunga 12, 01-0101 | Húsasjá