HÚSASJÁ

Súluhöfði 25

01-0101 · 270 Mosfellsbæ

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
31 myndir

139 m²

Stærð

3

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2000

Byggingarár

801 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Geymsla

Þvottahús



19 dagar á sölu

sell

99.900.000 kr

719.741 kr/m²

Berglind Hólm lgfs. og RE/MAX kynna: Sérlega rúmgóð og vel skipulögð hæð í tvíbýlishúsi á frábærum stað í Mosfellsbænum. Eignin hefur verið nánast öll endurnýjuð að innan síðan árið 2011. Árið 2011 voru innréttingar í eldhúsi og flísar í eldhúsi og forstofu endurnýjaðar, árið 2012 var baðherbergið endurnýjað svo sem innrétting, tæki og flísar og árið 2020 voru lögð ný gólfefni (vandað harðparket) á alrými og svefnherbergin þrjú. Sérinngangur er inn í eignina og tvö einkabílastæði fylgja henni á lóð. Góður geymslu skúr fylgir með í kaupum sem stendur á lóðinni. Stutt er í frábærar gönguleiðir, Golfvöllinn Hlíðarvöll, Lágafellslaug, World class og Lágafellsskóla.

Allar nánari upplýsingar veitir Berglind Hólm lögg.fasteignasali í síma 694-4000 eða berglind@remax.is

Nánari lýsing eignar:

Þegar komið er að húsinu er vinstra megin við húsið tvö einkabílastæði sem fylgja íbúðinni. Frá bílastæðinu er gengið niður hellulagðar tröppur niður að íbúðinni sem er á neðri hæð hússins.

Forstofa: Gengið er inn um sérinngang inn i rúmgóða forstofu með dökkum flísum á gólfi og fatahengi:

Hol: Komið er inn í hol frá forstofunni sem leiðir að mjög björtu og rúmgóðu alrými til vinstri frá holinu. Nýlegt harðparket er á gólfi á holi og á gangi sem leiðir einnig inn i stofuna.

Eldhús: Eldhúsið er mjög rúmgott og bjart með gluggum á tvo vegu. Innrétting er með miklu og góðu skápa og vinnuplássi. Innrétting er í U í hvítu háglans útliti með dökkri borðplötu. Ofn er í vinnuhæð og innbyggð uppþvottavél er i innréttingunni. Fallegar dökkar flísar eru á gólfi. Eldhúsið er opið að hluta yfir að stofurýminu.

Borðstofa + setustofa: Frá Eldhúsinu er opið yfir í borðstofuna og setustofuna. Frá borðstofunni er hægt að ganga út á hellulagða verönd sem fylgir íbúðinni. Góðir gluggar eru í rýminu sem hleypa fallegri birtu inn í stofurnar. Fallegt harðparket er á gólfi.

Baðherbergi: Baðherbergið er innst á gangi hjá barnaherberginu og þvottaherberginu. Baðherbergið er mjög rúmgott með opnanlegum glugga. Fallegar gráar flísar eru á gólfi og hvítar flísar eru á veggjum. Stór eikar innrétting er undir vaskaborði og fyrir ofan er stór spegill á vegg, innréttingin er með 9 góðum skúffum. Í rýminu er bæði baðkar og góð sturta sem er beint á gólf með glerskilrúmi.

3 x svefnherbergi (+ fataherbergi inn af hjónaherbergi): Svefnherbergin eru þrjú í eigninni og eru þau öll með fallegu harðparketi á gólfi. Í hjónaherbergi er innangengt í fataherbergi og í öðru barnaherberginu er góðu fataskápur.

Þvottaherbergi: Sér þvottaherbergi er innan íbúðar við hliðina á baðherberginu. Þvottaherbergið er með flísum á gólfi og góðum hillum á veggjum.

Geymsla: Á lóð fyrir framan íbúðina er góð útigeymsla með hillum.

Um er að ræða frábærlega staðsetta, fallega fjölskyldu íbúð í suðurhluta Mosfellsbæjar.

Allar nánari upplýsingar veitir Berglind Hólm lögg.fasteignasali í síma 694-4000 eða berglind@remax.is

Kort af Súluhöfði 25

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu