Jafnasel 6
01-0201 · 109 Reykjavík



692 dagar á sölu
89.000.000 kr
264.330 kr/m²
Betri Stofan fasteignasala kynnir nýtt í einkasölu: 337 fm atvinnuhúsnæði á efri hæð við Jafnasel 6 Reykjavík. Í húsnæðinu er og hefur verið rekinn bar af sama rekstraraðila síðastliðin 15 ár.
Um er að ræða sölu á fasteigninni, hægt er að semja um kaup á rekstrartækjum.
Nánari lýsing:
Þrír inngangar eru á eigninni, aðalinngangur er á gafli hússins. Við núverandi skipulag er rýmið tvískipti. Í stærri hluta hússins er innréttaður bar með eldhúsi, snyrtingum og innréttingum sem tilheyra rekstrinum. Í hinum hluta hússins er vinnusalur, geymslur og snyrting. Hurðargat er á milli rýma og því auðvelt að nýta í einu lagi. Barinn hefur vínveitingaleyfi til kl. 03:00 um helgar.
Þetta er eign með mikla möguleika varðandi skipulag og nýtingu.
Allar upplýsingar veitir Atli fasteignasali í síma 899-1178 eða atli@betristofan.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna














