HÚSASJÁ

Skipholt 66

01-0201 · 105 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
50 myndir

196 m²

Stærð

5

Herbergi

4

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

2000

Byggingarár

841 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Bílskúr

Þvottahús



9 dagar á sölu

sell

167.900.000 kr

856.633 kr/m²

Aðalsteinn Jón Bergdal lgf. og Trausti fasteignasala kynna í einkasölu mjög fallega og vel skipulagða sérhæð í góðu þríbýli með bílskúr miðsvæðis í Reykjavík að Skipholti 66. 2024 var húsið múrviðgert og málað.

Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.    Fáðu frítt söluverðmat fyrir þína eign.

Samkvæmt HMS er eignin skráð 196,0 fm og þar af er bílskúr skráður 28,0 fm.

Eignin skiptist í þrískipta stofu/borðstofu, eldhús, 4 svefnherbergi, 2 baðherbergi, þvottahús, forstofu og góðan bílskúr.

Nánari lýsing:

Forstofa er rúmgóð með flísar á gólfi og gott skápapláss.

Stofa/borðstofa er þrískipt og liggur í U kringum eldhús. Mjög rúmgóð með mikla möguleika. Parket á gólfi. Útgengt á góðar flísalagðar suð-vestur svalir.

Eldhús með fallegri Brúnás innréttingu með ofn(nýr) í vinnuhæð, viftu yfir helluborði, innbyggða uppþvottavél(ný) og flísar milli skápa. Neðri hluti var filmaður svartur 2024 sem setur skemmtilegan svip á eldhúsið og laus eyja sem passar einstaklega vel inn getur fylgt með. Þægilegar korkflísar á gólfi.

Hjónaherbergi er mjög rúmgott með parket á gólfi og gott skápa- og skúffupláss.

Svefnherbergi II er rúmgott með parket á gólfi og góðan skáp.

Svefnherbergi III er rúmgott með parket á gólfi og góðan skáp.

Svefnherbergi IIII er rúmgott með parket á gólfi. Var áður sjónvarpsstofa/partur af stofu en breytt í svefnherbergi 2022.

Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með Brúnás innréttingu, stórt hornbaðkar, handklæðaofn, upphengt salerni og glugga.

Baðherbergi II er flísalagt í hólf og gólf með Brúnás innréttingu og sturtuklefa.

Þvottahús er rúmgott með góða innréttingu og skápa, skolvask og flísalagt í hólf og gólf. Gluggi í þvottahúsi.

Bílskúr er 28,0 fm og mjög snyrtilegur með góðri lofthæð, nýjum hillum og góðu geymsluplássi.

Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla þar sem einnig er hægt að geyma dekk.

2 bílastæði fylgja eigninni, eitt fyrir framan bílskúr og annað framan við tröppur.

Frábær fjölskyldueign á góðum stað miðsvæðis í Reykajvík. Stutt í leik-, grunn- og menntaskóla sem og alla þjónustu. Kringlan, Klambratún og miðbærinn í göngufæri og fallegar gönguleiðir í Öskjuhlíð.

Nánari upplýsingar um eignina veitir Aðalsteinn Jón Bergdal, löggiltur fasteignasali, í síma 767-0777 eða á netfanginu alli@trausti.isForsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Skoðunarskylda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Kort af Skipholt 66

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30Mynd 31Mynd 32Mynd 33Mynd 34Mynd 35Mynd 36Mynd 37Mynd 38Mynd 39Mynd 40Mynd 41Mynd 42Mynd 43Mynd 44Mynd 45Mynd 46Mynd 47Mynd 48Mynd 49Mynd 50