Miðvangur 18
01-0205 · 700 Egilsstöðum



24 dagar á sölu
59.900.000 kr
644.086 kr/m²
Lf-fasteignasala/Lindin fasteignir s. 893-1319 og Þórdís Pála Reynisdóttir löggiltur fasteignasali thordis@lindinfasteignir.is kynna:
Miðvangur 18. Egilsstöðum, íbúð 0205.
Skemmtileg íbúð á 2 hæðum. Gengið er inn af svölum á 2. hæð.
Komið er inn í flísalagða forstofu með skáp og fatahengi.
Þar fyrir innan er lítð hol og inn úr því þvottahús og baðherbergi með baðkari og 1 svefnherbergi með góðum fataskáp. Eldhús og stofa eru samliggjandi með dyrum út á svalir. Stór og góð innrétting er í eldhúsini og flísar á öllum gólfum hæðarinnar. Gólfhiti er á baðherberginu.
Úr holinu er ágætur stigi upp í rishæðina sem skiptist í stofu/sjónvarpshol (hægt að breyta í svefnherbergi), gott svefnherbergi, lítið fataherbergi og geymslu undir súð.
Sameiginleg geymsla fyrir útidót er á jarðhæð.
Íbúðin er mjög vel staðsett í miðbæ Egilsstaða.

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður við sambærilegar eignir





























