Miðvangur 18
01-0203 · 700 Egilsstöðum



37 dagar á sölu
59.900.000 kr
642.015 kr/m²
BYR fasteignasala kynnir í einkasölu MIÐVANGUR 18 ÍBÚÐ 203, 700 Egilsstaðir.
Fjögurra herbergja íbúð á tveimur hæðum (annarri og þriðju hæð) miðsvæðis á Egilsstöðum.
Stutt í alla almenna þjónustu og útivistarsvæði, útsýni til fjalla og að Egilsstaðabýlinu. Smellið hér fyrir staðsetningu.
Húsið er byggt árið 2000. Íbúðin er á tveimur hæðum, neðri hæð 64.7 m² og efri hæð 33.1 m², samtals 93.3 m² að stærð samkvæmt skráningu HMS.
Skipulag íbúðar;
Neðri hæð (2. hæð): Anddyri, hol/stigi, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, herbergi, baðherbergi og þvottahús.
Efri hæð (3. hæð): Stigapallur/stofa, herbergi og geymsla.
Nánari upplýsingar hjá BYR fasteignasölu | byr@byrfasteignasala.is | 471 2858 |
Nánari lýsing;
Neðri hæð:
Anddyri, þaðan er innangengt í hol/stiga.
Hol/stigi þaðan er innangengt í önnur rými neðri hæðar og upp stiga á efri hæð.
Alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, útgengt er frá stofu út á suðursvalir.
Eldhús, L-laga innrétting (Ikea), spanhelluborð, vifta, ofn í vinnuhæð, innbyggður ísskápur og frystir, innbyggð Bosch uppþvottavél.
Herbergi I, fjórfaldur fataskápur.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, baðkar með sturtugleri, vaskinnrétting, salerni og handklæðaofn, rafræn loftun.
Þvottahús, pláss fyrir eina vél, vaskur, hillur.
Gólfefni: Flæðandi Vínylparket er á öllum gólfum nema baðherbergi þar eru flísar.
Efri hæð:
Stigapallur/stofa, opið rými, inn af stigapalli er geymsla.
Stofa var áður herbergi samkvæmt teikningu, möguleiki á að breyta aftur í þriðja herbergið.
Herbergi II, vinylparket á gólfi.
Gólfefni: Flæðandi Vínylparket er á öllum gólfum.
Miðvangur 18 er fjölbýlishús á þremur hæðum, með 10 íbúðum. Húsið er byggt úr steinsteyptum einingum, þak er klætt bárustáli.
Sér inngangur er íbúðina frá svölum. Sameiginleg lóð er frágengin, sorptunnuskýli. Í sameign á 1. hæð er sameiginleg geymsla/inntaksrými.
Malbikuð stæði við húsið eru í sameign. Húsfélag er starfrækt í eigninni.
Lóð er sameiginleg 1.851,0 m² leigulóð í eigu Múlaþings.
Skráning eignar samkvæmt fasteignayfirliti HMS:
Fasteignanúmer 224-6633. Miðvangur 18, Múlaþing.
Stærð: Neðri hæð 64.7 m². Efri hæð 33.1 m². Samtals 93.3 m².
Brunabótamat: 49.800.000kr.
Fasteignamat: 46.950.000 kr.
Byggingarár: 2000.
Byggingarefni: Steypa.
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU s. 471-2858 | byr@byrfasteignasala.is
Elín Káradóttir, löggiltur fasteignasali og eigandi – elin@byrfasteignasala.is
Hrönn Bjargar Harðardóttir, löggiltur fasteignasali / stílisti - hronn@byrfasteignasala.is
Opið alla virka daga milli kl. 09:00-16:00.
Um skoðunarskyldu:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Byr fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga / 1.6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 m.vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
www.byrfasteign.is | Miðvangur 2-4, 700 Egilsstaðir | Byr fasteignasala

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður við sambærilegar eignir























