HÚSASJÁ

Blikaás 44

01-0101 · 221 Hafnarfirði

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
42 myndir

198 m²

Stærð

4

Herbergi

3

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

2000

Byggingarár

390 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Bílskúr

Þvottahús

Heitur pottur



76 dagar á sölu

sell

153.400.000 kr

773.185 kr/m²

Ástþór Reynir & Guðmundur Þór Júlíusson löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu kynna í einkasölu: Virkilega fallegt og vel skipulögð parhús á vinsælum stað í Áslandinu í Hafnarfirði. Eignin telur alls 198,4 fm þar af er bílskúr 30,2 fm. Húsið er vel viðhaldið að innan sem utan. Glæsilegur sólpallur með heitum pott.

Eignin er á tveimur hæðum, fallega innréttuð með flísum á gólfum á jarðhæð. Á efri hæð eru 3 svefnherbergi með möguleika á 4 herberginu. Útgengt út á glæsilegan sólpall frá borðstofu, 30fm Bílskúr með geymslurými.

Bókið skoðun hjá Gumma Júl í síma 858-7410 eða með tölvupósti á netfangið gj@remax.is eða á Ástþór Reyni í síma 899-6753 eða með tölvupósti á netfangið arg@remax.is

Nánari lýsing:

Forstofa: Með rúmgóðum fataskáp og flísum á gólfi.

Salerni: Með upphengdu salerni og vask.

Stofa: Stofa, borðstofa og eldhús mynda gott og bjart alrými flísar á gólfi.

Eldhús: Er með fallegri sérsmíðuðum innréttingum og góðri eldunaraðstöðu. Gott og mikið borð og skápaplássi.

Svefnherbergi:  Er með góðum gluggum og rúmgóðum skápum, parket á gólfi.

Svefnherbergi:  Er með góðum gluggum og rúmgóðum skápum, parket á gólfi.

Hjónaherbergi: Parket á gólfi, rúmgott með miklu fatahirslum.

Baðherbergi:  Er með fallegri innréttingu, flísalagt gólf og veggir. Flísalögð sturta og sturtugler. Upphengt salerni. innbyggð tæki.

Þvottahús: Með vaski og flísalagt gólf.

Útisvæði: Garðurinn er fallegur, með timburverönd í bland við viðhaldslítiln gróður. Á pallinum er heitur pottur og snyrtileg setustofa ásamt útigeymslu.

Bílaplanið er hellulagt með snjóbræðslu.

Eignin hefur fengið gott viðhald í gegnum árin:

2018 Baðherbergi efri hæðar endurnýjað.

2019 Eldhús og salerni á neðri hæð endurnýjað.

2020 Sólpallur endurnýjaður og garðinum breytt.

2022 Rennihurð sett úr borðstofu þar sem gegnið er út í garð.

Frábær staðsetning þar sem stutt er í helstu þjónustu, skóla, leikskóla og falleg útivistarsvæði.

Allar nánari upplýsingar um eignina veitir:

Guðmundur Þór Júlíusson löggiltur fasteignasali í síma 858-7410 eða gj@remax.is

Ástþór Reynir löggiltur fasteignasali í síma 899-6753 eða arg@remax.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.

Kort af Blikaás 44

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð