Geldingalækur
01-0101 · 851 Hellu



164 dagar á sölu
159.000.000 kr
185.856 kr/m²
Framkvæmdasýslan - Ríkiseignir kynnir til sölu eign Ríkissjóðs Íslands, að Geldingalæk, 851 Hellu skammt frá Gunnarsholti og Ketilhúshaga (tengivegur nr. 268). Um er að ræða mannvirki á 3,5 ha stofnaðri leigulóð með landnúmer 219997 og fastanúmer 224-5382. Eignin samanstendur af reisulegu aðalhúsi, upphaflega byggðu 1954, sem er 591,7 fm á þremur hæðum auk kjallara, og fjárhúsi, byggðu 1950, alls 263,8 fm. Húsið hýsti meðferðarheimili fyrir ungmenni og er skráð sem slíkt.
JarðhæðRúmgott anddyri og sameiginleg parketlögð rýmiBjört borðstofa með útgengi á sólpall til suðursTvö svefnherbergi, annað með fataskápEldhús með góðri vinnuaðstöðu og miðlægum háfiStigar í sitthvorum enda hússins sem tengja allar hæðirStórt herbergi innaf sameiginlegu rými með innréttinguTvö minni herbergiFlísalagt anddyri og útgangur á vesturhlið2. hæðRúmgott sameiginlegt rými (skólastofa) með innréttingu og stiga upp í risTvö svefnherbergi með fataskápum, auk fimm annarra herbergja í vesturhlutaBaðherbergi með sturtu í vesturhluta og snyrting með klósetti í austurhlutaGóð geymslaRisOpin rými og tvö herbergiKjallariStórt þvottahúsÞrjú rúmgóð herbergi þ.á.m. eitt 35 fmBaðherbergi með tveimur walk-in sturtum og búningsaðstöðuFjárhús (Mhl. 02 – 263,8 fm)Byggt 1950Í dag eru básar fyrir um 10 hestaHúsið hefur fengið lítið viðhald og þarfnast endurbóta, m.a. á vatnslögnum
Endurbætur og framkvæmdirSkýrslur EFLU (febrúar og mars 2024) sýna að mygla fannst í húsinu, sérstaklega í kjallara. Nauðsynlegt er að ráðast í dren, yfirferð og endurnýjun rafmagns- og vatnslagnaBaðherbergi og gólfefni að hluta endurnýjuð 2021Ný 7 5/8“ neysluvatnshola var boruð mars 2024, en hún hefur ekki verið tengd húsiLagfæringar á þakplötum og dren við húsið eru nauðsynlegarAðrir þættirÁ bæjarstæðinu er hellir sem telst til fornleifaHitun hússins er með rafmagnskútum og þrýstijafnara fyrir heitt vatnLóðarleigusamningurVið sölu verður gerður 50 ára leigusamningur um lóðina samhliða kaupsamningi:Leiguverð fyrir atvinnurekstur: allt að 351.778 kr. á áriLeiguverð fyrir íbúðarhúsnæði: allt að 194.000 kr. á áriSamantektStórt, fjölhæft hús með mikla möguleika – tilvalið fyrir ýmsa þjónustustarfsemi, eins og rekstur gistiheimilis eða íbúðarhúsnæðiRúmgóð og björt rými sem bjóða upp á fjölbreytta nýtinguGlæsilegt umhverfi í sveitasælunni á SuðurlandiTækifæri fyrir rétta aðila að skapa verðmæta og einstaka eign með endurbótumEignin er seld í núverandi ástandi með möguleikum á umtalsverðum virðisauka eftir endurbætur
Nánari upplýsingar er hægt að nálgast hjá FSRE eða með því að senda tölvupóst á hrund.einarsdottir@fsre.is
Seljandi þekkir ekki eignina umfram það sem fram kemur í opinberum gögnum. Því leggur seljandi ríka áherslu á að sérstakrar árvekni sé gætt við skoðun og úttekt á eigninni og veitir FSRE allan nauðsynlegan aðgang til þess.

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður við sambærilegar eignir








































