HÚSASJÁ

Roðasalir 12

01-0101 · 201 Kópavogi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
47 myndir

211 m²

Stærð

6

Herbergi

2004

Byggingarár

430 m²

Lóð

Bílskúr

Þvottahús

Auka íbúð



50 dagar á sölu

sell

169.900.000 kr

804.832 kr/m²

Fasteignasalan TORG kynnir: Virkilega fallegt 5-6 herbergja parhús á tveimur hæðum við Roðasali 12 í Kópavogi. Húsið er skráð 211,1 fm og skiptist í fjögur svefnherbergi, þvottahús (sem hægt er að breyta í svefnherbergi), stofu/borðstofu, eldhús, tvö baðherbergi, sjónvarpshol, bílskúr og anddyri. Óskráð útigeymsla er í bakgarðinum. ATH - Einnig er möguleiki á því að stúka af auka íbúð á neðri hæð. Allar nánari upplýsingar veitir Darri Örn Hilmarsson, löggiltur fasteignasali, í síma: 767-0000 eða með tölvupósti: darri@fstorg.is

***EIGNIN ER LAUS VIÐ KAUPSAMNING***

Nánari lýsing: Komið er inn í anddyri með innbyggðum fataskápum. Frá anddyri er gengið inn í rúmgott forstofuherbergi sem getur nýst sem skrifstofa eða svefnherbergi. Frá anddyri er einnig innangengt inn í bílskúr. Við tekur rúmgott sjónvarpshol en þaðan er hurð út á austurhlið hússins sem væri hægt að nota sem annan inngang í húsið. Annað svefnherbergi er síðan á neðri hæðinni með innbyggðum fataskáp. Gert er ráð fyrir þvottahúsi í bílskúr og/eða í sér herbergi á neðri hæðinni með hurð úti í bakgarð (norðurhlið) en auðveldlega er hægt að nýta það herbergi sem svefnherbergi með því að hafa þvottahúsið í bílskúrnum (allar tengingar til staðar í bílskúr). Á neðri hæðinni er einnig baðherbergi með baðkari, sturtu, upphengdu salerni og ljósri innréttingu frá Beyki með handlaug. Gengið er upp fallega hannaðan stiga upp á efri hæðina en þar er stórt og mikið alrými með góðri lofthæð. Í alrýminu er eldhús með sérsmíðaðri eldhúsinnréttingu frá Beyki, Siemenz raftæki og falleg borðplata úr svörtum stein frá S. Helgasyni. Stofan og borðstofan er mjög rúmgóð með fallegu útsýni út á grænt svæðin og golfvöllinn.  Frá stofu og hjónaherbergi er gengið út á stórar svalir til suðurs / suðvesturs. Á efri hæðinni eru tvö svefnherbergi, bæði með innbyggðum fataskápum og er annað þeirra hugsað sem hjónaherbergi með hurð út á svalir. Baðherbergið er með sturtu, upphengdu salerni og ljósri innréttingu frá Beyki með handlaug. Lóðin er öll hellulögð. Fyrir aftan hús er síðan óskráð, köld útigeymsla.

ATH - Möguleiki er á því að stúka af hluta af neðri hæð og búa til auka íbúð.

Allar nánari upplýsingar veitir Darri Örn Hilmarsson, löggiltur fasteignasali, í síma: 767-0000 eða með tölvupósti: darri@fstorg.is

Kort af Roðasalir 12

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu