HÚSASJÁ

Akralind 3

02-0101 · 201 Kópavogi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
28 myndir

640 m²

Stærð

2

Baðherbergi

2000

Byggingarár

2381 m²

Lóð

Sérinngangur

Geymsla

Þvottahús



70 dagar á sölu

sell

349.000.000 kr

545.568 kr/m²

Jason Kristinn fasteignasali, sími 775 1515 og Betri Stofan fasteignasala kynna: Akralind 3, 639,7 fm Skrifstofu og lagerhúsnæði á frábærum stað miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu. Húsnæðið er á þremur hæðum, góð aðkoma beggja vegna og næg bílastæði.

Nánari lýsing:  1.hæð: Inngangur Akralindar megin Um 300 fm lagerrými með góðri lofthæð, stór innkeyrsluhurð (H=3.10 cm. B=2.67 cm.), salerni og tvær litlar geymslur. Einnig er 35 fm bílskúr/vörumóttaka með stórri innkeyrsluhurð. Bæði rými með sér inngang.

Skrifstofa + salur - 2. og 3. hæð:  Um 340 fm rými sem skiptist í um 195 fm skrifstofurými á 2.hæð (sér inngangur) sem skiptist í Afgreiðslu/móttöku, opið skrifstofurými (nú 3 vinnustöðvar), tvær lokaðar skrifstofur, fundarherbergi, skjalageymslu, kaffistofu og salerni m/sturtu). Þaðan er svo gengið upp á 3. hæð þar sem er um 145 fm salur sem er í dag nýttur sem veislusalur en hægt að nýta sem opið skrifstofurými.

Glæsilegt atvinnuhúsnæði miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu með mikla nýtingarmöguleika. Góð aðkoma og næg bílastæði. Stutt út á stofnbrautir. Húsið er á þremur hæðum. Húsnæðið er mjög snyrtilegt með vönduðum innréttingum og innbyggðri lýsingu. Laust við kaupsamning.

Nánari lýsing

1.hæð: Um er að ræða um 300 fm lagerrými og vörumóttöku. Aðkoma að 1.hæð er frá bílastæði að neðanverðu eða Akralindar megin. Inngangar eru tveir, á sitthvorum enda rýmisins ásamt stórum fjarstýrðum innkeyrsluhurðum. Öryggiskerfi og járngrindur fyrir gluggum. Innangengt upp á 2.hæð um stiga. Lagerrými er um 244 fm með sérinngangi og innkeyrsluhurð. Inn af lager eru tvær geymslur og snyrting.

Vörumóttaka með sérinngangi og innkeyrsluhurð.

2.hæð: Á 2.hæð er flott skrifstofuaðstaða, um 196,7 fm, með sérinngangi að ofanverðu húsinu sem skiptist í anddyri, 2 skrifstofur, 2 vinnusali, fundarherbergi, kaffistofu, 2 snyrtingar, þar af önnur með sturtu og geymslu.

Anddyri Gengið er inn af bílastæði að ofanverðu húsinu. Flísar á gólfi. Vinnusalur#1 til vinstri frá anddyri. Innréttað sem verslunarrými með afgreiðsluborði og innbyggðum hillum og góðri lýsingu. Flísar á gólfi. Gengið er upp stiga á 3.hæð frá þessu rými.

Vinnusalur #2 Opið skrifstofurými innréttað með góðri aðstöðu fyrir þrjá starfmenn. Flísar á gólfi. Stigi frá þessu rými niður á 1. hæð. Skrifstofa#1 Stór hornskrifstofa með góðu útsýni. Parket á gólfi. Skrifstofa#2 Stór hornskrifstofa sem snýr að bílastæði að ofanverðu húsinu. Parket á gólfi.  Fundarherbergi með góðu útsýni. Parket á gólfi.  Kaffistofa með eldhúsinnréttingu. Flísar á gólfi. Snyrting #1 með salerni, sturtu og innréttingu ásamt vaski. Flísar á gólfi.  Snyrting#2 Inn af anddyri með salerni og vaski. Flísar á gólfi. Geymsla með talnalæsingu, flísar á gólfi.

3.hæð:  Gengið er upp stiga úr vinnusal af annarri hæð. Á þriðju hæð er komið í stóran sal með góðri lofthæð og flottu útsýni. Góð eldhúsinnrétting með vaski, teppi á gólfi. Afstúkað fatahengi og geymsla inn af sal. Samtals um 143 fm.

Allar nánari upplýsingar veitir Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515, jason@betristofan.is lgfs.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:

1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Kort af Akralind 3

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu