HÚSASJÁ

Spóahöfði 2

01-0101 · 270 Mosfellsbæ

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
41 myndir

180 m²

Stærð

5

Herbergi

4

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1999

Byggingarár

633 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús

Heitur pottur



92 dagar á sölu

sell

144.900.000 kr

806.793 kr/m²

** Opið hús þriðjudaginn 3.mars frá kl. 16:30 til 17:00 - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Fallegt og vel skipulagt 179,6 m2 endaraðhús með innbyggðum bílskúr Spóahöfða 2 í Mosfellsbæ. Eignin skiptist í eldhús, stofu/borðstofu, gang, 4-5 svefnherbergi, rúmgott risloft/sjónvarpstofu, baðherbergi, forstofu, þvottahús og bílskúr með geymslulofti. Eignin er skráð 179,6 m2, þar af raðhús 150,0 m2 (þar af milliloft 19,1 m2) og bílskúr 29,6 m2. Milliloftið er mun stærra en skráðir fermetrar þar sem það er að hluta undir súð og auk þess búið að gera herbergi inn af því. Í bakgarði er garðskáli og timburverönd í suðausturátt með heitum potti, úti sturtu. Einnig er þar góð geymsla og lítið gróðurhús. Fyrir framan hús er önnur timburverönd og hellulagt bílaplan með snjóbræðslu og hleðslustöð sem fylgir. Vinsæl staðsetning, stutt í golfvöll,  Lágafellskóla, leikskólann Hulduberg og Lágafellslaug.

Samkvæmt upplýsingum frá seljanda hefur verið farið í framkvæmdir og endurbætur á eigninni á síðustu árum:

Árið 2019-2020 var útbúin garðstofa, timburverönd með heitum potti og útisturta

Árið 2022 var settur hiti í gólf í eldhús, nýjar flísar og ný eldhús innrétting frá Brúnás. Nýjar vatnslagnir í eldhús, auk beintenging í heita pottinn. Ný neysluvatnsgrind í bílskúr. Nýtt parket á allt húsið.

Árið 2024 var smíðuð skjólgirðing, útbúin köld geymsla í garði og litið gróðurhús.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.

Nánari lýsing:

Forstofa er rúmgóð með flísum á gólfi og gólfhita. Úr forstofu er innangengt í bílskúrinn.

Gangur er inn af forstofu með parketi á gólfi. Af gangi er stigi upp í risloft og herbergi.

Stofa og borðstofa er í opnu björtu rými og með parketi á gólfi. Mikil lofthæð er í rýminu sem gerir það bjart og skemmtilegt. Úr stofu er gengið út á timburverönd í suðvesturátt.

Eldhús er með fallegri innréttingu og eyju frá Brúnás. Gott skápapláss. Í eyjunni er helluborð, í innréttingunni er blástursofn og innbyggður ísskápur. Úr eldhúsi er gengið inn í garðskála

Svefnherbergi nr. 1 (hjónaherbergi) er með parketi á gólfi og fataherbergi

Svefnherbergi nr. 2 og 3 er með fataskápum og parketi á gólfi. Skv. teikningu er gert ráð fyrir tveimur herbergjum en búið er að opna á milli. Auðvelt er að breyta til baka.

Svefnherbergi nr. 4 er með parketi á gólfi.

Baðherbergi er flísalagt og með vegghengdu salerni, handklæðaofni, innréttingu með vaski baðkari og sturtu.

Þvottahús er með flísum á gólfi. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara

Risloft og svefnherbergi nr 5. eru með parketi á gólfi. Í svefnherbergi er þakgluggi.

Bílskúrinn er með steyptu gólfi og góðu geymslulofti. Innangengt er úr forstofu inn í bílskúrinn.

Verð. kr. 144.900.000,-

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.

Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.

3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

Kort af Spóahöfði 2

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30Mynd 31Mynd 32Mynd 33Mynd 34Mynd 35Mynd 36Mynd 37Mynd 38Mynd 39Mynd 40Mynd 41