HÚSASJÁ

Barðastaðir 21

01-0203 · 112 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
36 myndir

137 m²

Stærð

3

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1999

Byggingarár

5200 m²

Lóð

Garður

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



315 dagar á sölu

sell

89.500.000 kr

655.678 kr/m²

***LAUS VIÐ KAUPSAMNING***

SKEIFAN FASTEIGNASALA kynnir í einkasölu Barðastaðir 21 Falleg og björt 4ra herbergja íbúð á annarri hæð í viðhaldsléttu fjölbýlishúsi, ásamt bílskúr í sérstæðri lengju. Íbúð 104,1 fm, geymsla 4,8 fm og bílskúr 27,6 fm, alls 136,5 fm. Snyrtileg sameign.

Nánari upplýsingar veitir Halldór Kristján Sigurðsson í s. 618-9999 tölvupóstur halldor@skeifan.is

NÁNARI LÝSING:

Gangur/forstofa: Með innfelldum fataskáp.

Hol: Sjónvarpshol í miðrými eignarinnar.

Alrými: Samanstendur af opnu eldhúsi, borðstofu og stofu, mjög rúmgott, útgangur út á svalir. Eldhús með viðarinnréttingu.

Baðherbergi: Vaskur í innréttingu, speglaskápur, baðkar og sturtuklefi. Flísar á veggjum.

Þvottahús: Innaf eldhúsi, flísar á gólfi.

Svefnherbergi: Þrjú, öll rúmgóð og með viðarskápum.

Á flestum gólfum er nýlegt vinylparket, nema annað sé tekið fram.

Geymsla: Á jarhæð í sameign.

Bílskúr: í sérstæðri lengju, með sjálfvirkum hurðaopnara, gluggar og geymsluloft.

Að utan: Húsið er steinað. Verið er að lagfæra sprungur og steiningu, framkvæmdir verða greiddar af seljanda.

Nýlegt gólfefni á öllum rýmum nema þvottahúsi

Lóðin og Bílastæði: Eru vel um gengin.

Snyrtileg og vel skipulögð íbúð í rólegu hverfi.

Nánari upplýsingar veitir Halldór Kristján Sigurðsson í s. 618-9999 tölvupóstur halldor@skeifan.is

Kostnaður kaupanda vegna kaupa:  Stimpilgjald kaupsamnings einstaklinga er 0,8%  og lögaðila  1,6% af fasteignamati eignar. Lántökugjald getur verið breytilegt eftir lánastofnunum,  oftast 1%. Þinglýsingargjald er 2.000 fyrir hvert skjal. Þjónustu- og umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Skeifan fasteignasala bendir öllum sem hugsa sér að kaupa, að kynna sér vel ástand fasteignarinnar við skoðun fyrir tilboðsgerð og leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf þykir.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

SKEIFAN SKILAR ÁRANGRI - SÍÐAN 1985

Skeifan fasteignasala | Suðurlandsbraut 46 | 108 Reykjavík | Opið frá kl. 9-17 mánudaga til föstudaga | www.skeifan.is

Skeifan á Facebook

Kort af Barðastaðir 21

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð