HÚSASJÁ

Laugavegur 63

02-0401 · 101 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
24 myndir

127 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1943

Byggingarár

1095 m²

Lóð

Bílskúr

Geymsla



589 dagar á sölu

sell

89.900.000 kr

705.651 kr/m²

Pálsson Fasteignasala kynnir:

Opin, björt og falleg 127m2 íbúð á efstu hæð á vinsælum og eftirsóttum stað í Reykjavík. Um er að ræða íbúð með mikinn karakter á efstu hæð "Penthouse" með fallegu útsýni. Rýmið var áður atvinnuhúsnæði en hefur verið breytt í íbúðahúsnæði og er skráð sem íbúðahúsnæði í dag

* Tvö einkabílastæði fylgja

* Tvö svefnherbergi

* Stækkunarmöguleikar

* Gott útsýni

Nánari upplýsingar veita:

Hrafnkell Pálmarsson MBA / Lgf. í síma nr 660-1976 eða hrafnkell@palssonfasteignasala.is

Páll Pálsson Lgf. í síma nr775-4000 eða palli@palssonfasteignasala.is

www.eignavakt.is

www.verdmat.is

Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Íbúðin skiptist í stofu með eldhúsi, tvö rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi og geymslu.

Gengið er inn í alrými og á hægri hönd er forstofurými með fatahengi

Eldhúsið er í opnu rými með stofu, innréttingin sérsmíðuð, bakaraofn, gashelluborð, innbyggð uppþvottavél og vaskur.  Linoleum dúkur á gólfum

Stofan er rúmgóð og björt. Stofan myndar opið rými með eldhúsi. Linoleum dúkur á gólfum. Útgengt er úr stofu á svalir með glæsilegu útsýni.

Hjónaherbergi er rúmgott. Linoleum dúkur á gólfum

Baðherbergið er með baðkari með sturtuhaus, handlaug og klósetti. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Dúkur á gólfum

Svefnherbergi er rúmgott með fataskáp. Linoleum dúkur á gólfum

Geymsla er innan íbúðar 5,9m2 að gólffleti og á tveimur hæðum

Með eigninni fylgja tvö einkastæði í porti fyrir aftan húsið.

Gildandi deiliskipulag leyfir breytingu á þaki vestanmegin sem myndi stækka íbúðina umtalsvert ásamt því að opna fyrir útsýni til vesturs.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).

2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Kort af Laugavegur 63

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð