HÚSASJÁ

Gautavík 19

02-0201 · 112 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
22 myndir

106 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1999

Byggingarár

1584 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Geymsla

Þvottahús



44 dagar á sölu

sell

83.900.000 kr

793.756 kr/m²

Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali og Domusnova fasteignasala kynna:

Vel skipulögð og björt íbúð í litlu fjölbýli með sérinngangi, stutt í leik- og grunnskóla og alla helstu þjónustu.

Eignin samanstendur af forstofu, tveimur rúmgóðum herbergjum, eldhúsi með búri/geymslu, þvottahúsi og geymslu innan íbúðar, góðri stofu/borðstofu með útgengi á suðursvalir.

Íbúðin er staðsett á annarri hæð (efstu) og fylgir henni sérmerkt bílastæði.

Eldhús og baðherbergi uppgerð 2019 og 2020. Nýlegt parket og þvottahús uppgert 2023.

Rólegt fjölskylduhverfi, fallegt útsýni og stutt í náttúru.

360 gráðu skoðun fá finna á hlekknum hér!

Nánari lýsing:

Forstofa - komið inn í góða forstofu, flísar á gólfi ásamt rúmgóðum fataskáp.

Eldhús - nýleg svört innrétting, með granítborðplötum frá S.Helgasyni, nýlegum tækjum frá Samsung, parket á gólfi. Innst í eldhúsinu er borðkrókur fyrir matarborð og bjartur gluggi þar með fallegu útsýni.

Eldhúsbúr/aukageymsla - er inni af eldhúsi, með opnanlegum glugga, parket á gólfi og getur nýst sem búr, geymsla eða jafnvel skrifstofa.

Hjónaherbergi - er rúmgott með stórum fataskáp og parekti á gólfi.

Baðherbergi - flísalagt, rúmgóð þröskuldarlaus sturta, upphengt WC, geymslupláss í innréttingu, vaskur og fallegur hringlaga spegill með ljósi.

Barnaherbergi - er rúmgott með góðum fataskáp, parketi á gólfi.

Stofa/borðstofa - er björt og rúmgóð, stofugluggi til suðurs og gengið út á 8,4fm suðursvalir með fallegu útsýni og fjarlægð í næstu hús.

Þvottahús/geymsla - er innan íbúðar, nýleg innrétting með miklu geymsluplássi, þvottavél og þurrkari eru í vinnuhæð og flísar á gólfi.

Rafhleðslustöð er við sérmerkt bílastæði.

Á sameign er hjóla- og vagnageymsla, lóð er í góðri umhirðu, hitalögn í stiga upp á stigapall og lokuð ruslageymsla.

Leik- og grunnskóli í 200 metra göngufæri. Spöngin er einnig í göngufæri með alla helstu þjónustu, Egilshöll, Sundlaug Grafarvogs, Borgarholtsskóli á framhaldsskólastigi, svo eitthvað sé nefnt, er allt innan hverfis.

Upplýsingar gefa:

Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali

Sími: 899 0720

Netfang: hrannar@domusnova.is

Kort af Gautavík 19

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu