Grensásvegur 7
03-0402 · 108 Reykjavík



163 dagar á sölu
139.000.000 kr
316.629 kr/m²
Betri Stofan fasteignasala og Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 kynnir: glæsilegt og mikið endurnýjað, rúmgott 439 fm skrifstofuhúsnæði til sölu miðsvæðis í Reykjavík, á 3. hæð við Grensásveg 7. Um er að ræða tvo sameinaða eignahluta fasta.nr. 223-8897(165,1 fm) og fasta.nr. 223-8898 (273,9), samkvæmt Þjóðskrá. Samtals eignarhlutur ásamt sameign og öllu því sem fylgir og fylgja ber er 439 fm. Tölvulagnir og raflagnir um allt húsnæðið. Loftræstikerfi. Aðgangsstýringar.
Húsnæði er laust fljótlega.
Nánari lýsing:
Húsnæðið hefur verið nýtt í heilu lagi sem skrifstofur og afar auðvelt að hefja starfssemi. Tölvu- og rafmagnslagnir eru með veggjum og einnig eru stöðvar á gólfum. Á efstu hæðinni eru 5 herbergi með glerveggjum, 4 salerni og opið rými. Í risinu er eldhús, matsalur og fundarherbergi. Þar er einnig geymsluherbergi og loftræstisamstæða. Rennihurð skiptir húsnæðinu upp en auðvelt er að skipta því varanlega í tvo hluta sem eru til sölu eða leigu hvor í sínu lagi eða saman. Einnig er mögulegt að skipta húsnæðinu í þrennt, tvo hluta sem eru 165 fm hvor og risið sem er 107 fm.
Helstu endurbætur á sameign Grensásvegar 7 eru að fyrir 15 árum var þakefni endurnýjað ásamt þakgluggum og skipt um allt gler og sett sólvarnargler. Einnig var nýr dúkur lagður á stigagang, hann málaður og sett upp brunavarnarkerfi með reyklosun í stigagangi. Árið 2019 voru frárennslislagnir fóðraðar í Grensásvegi 3-7.
Lagnir í bílaplani að vestan voru hreinsaðar og ræsi löguð.
Helstu endurbætur á séreigninni eru eftirfarandi:
Árin 2010 -2011 var allt húsnæðið endurnýjað og innréttað ásamt rafmagni tölvulögnum og hreinlætistækjum (upphengd WC). Skipt var um gler og svalahurðir í austurhlið og sett sólvarnargler (filtrerar 90% af hita). Sett var öflug loftræstisamstæði (varmaskipta) og loftræstikerfi fyrir alla eignina. Búið er að leggja sér hitalagnir og setja mæla fyrir báða eignarhluta.
Árið 2016 voru settar aðgangsstýrðar hurðir úr stigagangi. Öryggiskerfi er í allri eigninni. Húsnæðið er skráð vsk-húsnæði.
Reykjavíkurborg hefur gert nýtt rammaskipulag fyrir Skeifuna sem felur í sér aukið byggingarmagn á svæðinu.
Nánari upplýsingar veitir Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 - jason@betristofan.is löggiltur fasteignasali.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna






























