Birkigrund 44
01-0101 · 800 Selfossi



139 dagar á sölu
115.000.000 kr
517.319 kr/m²
Hafsteinn Þorvaldsson fasteignasali ásamt HÚS fasteignasölu kynna í einkasölu: Vandað og snyrtilegt 168,2 fm einbýlishús með 54,1 fm sambyggðum bílskúr samtals 222,3 fm byggt úr timbri árið 1998 í hinu vinsæla Grundahverfi á Selfossi. Að utan er húsið klætt með stení og járn er á þaki. Garður er gróinn, malbiksmöl í bílaplani, stór timbur sólpallur með skjólgirðingu og heitum potti. Húsið stendur næst innst í botnlangagötu á frábærum stað á Selfossi.
Nánari lýsing: Fimm góð svefnherbergi eru í húsinu, öll með fataskápum. Flísalögð forstofa með góðum fataskáp. Stórt og bjart miðrými hússins telur rúmgott sjónvarpshol, eldhús og borðstofu sem aðeins er stúkað af og síðan er stofa. Úr stofunni er útgengt út á sólpall. Í þessu rými er upptekið loft, hvíttaður panill með innfelldri ledlýsingu. Í eldhúsi er snyrtileg upprunaleg innrétting með góðu skápaplássi og glerskápum að hluta. Baðherbergi með innréttingu, sturtu og flísalagt í hólf og gólf. Þvottahús , úr því er innangengt í rúmgóðan, snyrtilegan og bjartan tvöfaldan bílskúr. Í bílskúr er geymslulofti.
Á gólfum eru annars vegar drappaðar flísar og hins vegar parket.
Í alla staði vel skipulögð, snyrtileg og vönduð eign staðsett í barnvænu umhverfi þar sem stutt er í leik- og grunnskóla.
Hafsteinn Þorvaldsson löggiltur fasteignasali s. 891-8891 eða hafsteinn@husfasteign.is
Hringið og bókið skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati, fyrstu kaupendur 0,4%, lögaðilar 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Fasteignasalan því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna


























