HÚSASJÁ

Drífubakki 3

01-0102 · 270 Mosfellsbæ

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
17 myndir

115 m²

Stærð

1

Baðherbergi

1996

Byggingarár

874 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Geymsla



257 dagar á sölu

sell

43.500.000 kr

379.913 kr/m²

ÁSBYRGI FASTEIGNASALA EHF, INGILEIFUR EINARSSON, LÖGG. FASTEIGNASALI, ingileifur@asbyrgi.is, KYNNIR: VAR AÐ FÁ Í EINKASÖLU MJÖG GOTT VEL STAÐSETT HESTHÚS VIÐ DRÍFUBAKKA 3, MOSFELLSBÆ.

Stærð hússins skv. Fasteignaská HMS er 114,5 fm sem skiptist í hesthús hl 01 0102 að stræð 84.9 fm og hl. 01 0202 kaffistofu í risi að strærð 29.6 fm.

Húsið er miðjuhús, í mjög góðu ástandi. Á jarhæðinni er auk hesthússins hlöðupláss og hnakkageymsla.

Heshúsið er stíur með steyptum frontum, en milligerðir og hlið eru galviniseruð með plastpanelum.  Kaffistofan á rishæðinni er með sérinngangi og stórum kvisti.  Hún er mjög góð með snyrtingu og góðri eldhúsinnréttingu. Kaffistofan er stærri þar sem HMS mælir ekki lofthæð undir 1,8 m. Geymslur eru undir súð.

Ástand hússins að utan er gott, nýlega búið að skipta um járn á þaki. Sérgerði er  en sameiginleg taðþró. Í vor var skipt um jarðhveg í gerði.

Steypt stétt er framan við húsið. Ekki er starfrækt formlegt húsfélag á  heildareigninni.

Laust við undirritun kaupsamnings.

Allar nánari upplýsingar veitir Ingileifur Einarsson, lögg. fasteignasali, ingileifur@asbyrgi.is, s. 568-2444 og gsm 894-1448.

Kort af Drífubakki 3

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu