Efristígur 11
01-0101 · 806 Selfossi



15 dagar á sölu
59.900.000 kr
843.662 kr/m²
Efristígur 11, Þingvöllum, birt stærð 71.0 fm. og er bústaðurinn stærri en skráðir fermetrar segja til um.
Lóðin er 5.400 fm. að stærð og er leigulóð í eigu Ríkissjóðs Íslands. Lóðarleigusamningur er framlengdur um 10 ár í senn.
Sjarmerandi og velstaðsett í aðeins 20 mínútna fjarlægð frá Mosfellsbæ, húsið er staðsett á fallegum og friðsælum stað á í landi Kárastaða við Þingvallavatn. Kyrrð, útsýni og gönguleiðir í þjóðgarðinum er það sem gerir þennan bústað að paradís fyrir fjölskylduna stutt frá höfuðborgarsvæðinu.
Bústaðurinn hefur verið mikið endurnýjaður að utan undanfarið ár. Húsið var yfirfarið að utan og sólpallurinn einnig.
Efristígur 11 er í landi Kárastaða á Þingvöllum og tilheyrir Þjóðgarðinum og hefur 7 daga ruðningsþjónustu á Þingvallarvegi og möguleiki að fá ruðning heim að húsi. Læst hlið er inn á lóðina.
Anddyri rúmgott með fatahengi og flísum á gólfi.
Geymsla er inn af anddyri með glugga og flísum á gólfi.
Eldhús, borðstofa og stofa eru í opnu rými með parketi og flísar við útgang á gólfi.
Stofa og boðrstofa er rúmgóð með stórum gluggum, arinn er í stofunni. Útgengt er úr stofunni út á mjög stóran pall.
Eldhús er opið við stofurýmið, snyrtileg innrétting, tengi fyrir uppþvottavél, ofn og helluborð.
Baðherbergi með sturtu, gluggi og snyrtilegri innréttingu.
Svefnloft með hlera, þar er gólfflöturinn mjög stór. Tvennir gluggar eru á svefnloftinu. Geymslurými er á svefnloftinu.
Rafmagnskynding er í húsinu sem og loftvarmadæla.
Húsið er staðsett í Þjóðgarðinum á Þingvöllum. Þingvallanefnd á forkaupsrétt við sérhver aðalskipti.
Kaupandi skal kynna sér lóðaleigusamning Þingvalla, þá sérstaklega ákvæði 10 og 11 gr. þar sem kveðið er á um að framsal leiguréttar sé háð skriflegu samþykki Lóðaleigusamningur er í gildi,
Óheimilt er að leigja bústaðinn út, sjá ákvæði greinar 4.1. þar að lútandi.
Fallegur og vel viðhaldinn bústaður við Þingvallavatn í Þjóðgarðinum, á þessum stórfenglega stað.
Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 899-5949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.isForsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna







































