HÚSASJÁ

Lækjasmári 7

01-0202 · 201 Kópavogi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
17 myndir

117 m²

Stærð

2

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1998

Byggingarár

706 m²

Lóð

Garður

Geymsla

Þvottahús



202 dagar á sölu

sell

93.000.000 kr

795.552 kr/m²

Lind fasteignasala, Herdís Sölvína Jónsdóttir og Sigrún Ragna, löggiltir fasteignasalar kynna í einkasölu fallega og vel skipulagða 4ra herbergja íbúð á annarri hæð að Lækjasmára 7, 201 Kópavogi.

Nánar tiltekið eign merkt 02-02.

Íbúðin skiptist í anddyri, hol, þrjú svefnherbergi, eldhús, stofu/borðstofu, baðherbergi og þvottahús. Þá fylgja íbúðinni jafnframt tvær geymslur, hlutdeild í sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu og stæði í bílageymslu.

Samkvæmt FMR er birt flatarmál eignarinnar 116,9 fm. ásamt tveimur geymslum sem eru 9,6 og 5,8 fm.

Nánari lýsing:

Anddyri: Flísar á gólfi, fataskápur.

Eldhús:  Rrúmgott og bjart með kirsuberjainnréttingu, flísar á gólfi.

Stofa, hol og borðstofa: Eru í opnu rými, léttur veggur skilur hol og alrými að. Útgengt er úr stofu á rúmgóðar svalir til norð-austurs.

Svefnherbergi:  Eru þrjú, öll með parketi á gólfum og fataskápum.

Baðherbergi: Nýuppgert  með flísum á gólfi og veggjum, hvítri innréttingu og sturtu með flísalögðum botni og sturtugleri.

Þvottahús: Flísar á gólfi og skolvaskur.

Tvær sérgeymslur fylgja eigninni og er önnur á fyrsta stigapalli og er 5,6 fm og hin í sameign 9,8 fm.

Innangengt er í lokaða bílageymslu.

Framkvæmdir utanhúss:

2018: Þak málað og naglar teknir og skrúfur með þéttingu settar í staðinn.

2020: Skipt um glugga á austurhlið, gert við múr og húsið málað.

Eignin er sérlega vel staðsett og í göngufæri við alla helstu þjónustu og útivistarsvæði.

Yfir 60 verslanir, 2 leikskólar, grunn­skóli, heilsugæsla, heilsurækt. margvísleg íþrótta­mannvirki, Smáralind og Smáratorg,

Hússjóður 29.626 á mánuði

Innifalið: almennur rekstur húsfélagsins, allur hitakostnaður, allt rafmagn í bílageymslu, húseigendatrygging

Engar fyrirhugaðar framkvæmdir

Nánari upplýsingar veitir Herdís Sölvína Jónsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 862 0880 eða herdis@fastlind.is.

Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá 10 samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan,

Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma og Sýn.

** Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.

** Hafðu samband og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.

** Frítt söluverðmat á þinni eign hér eða hjá Herdís Sölvína Jónsdóttir, sími 862 0880 / herdis@fastlind.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lind fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali metur eignina með sjónskoðun.

Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

-----------------------------------------------------------------------

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila

Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati

2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar

4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Kort af Lækjasmári 7

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð