HÚSASJÁ

Dísaborgir 7

01-0203 · 112 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
35 myndir

96 m²

Stærð

3

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1997

Byggingarár

847 m²

Lóð

Sérinngangur



9 dagar á sölu

sell

76.000.000 kr

788.382 kr/m²

NÝTT Í SÖLU - OPIÐ HÚS.  MJÖG FALLEG ÚTSÝNISÍBÚÐ Á EINSTÖKUM STAÐ.

DÍSABORGIR 7 - GRAFARVOGI. 4RA HERBERGJA ENDAÍBÚÐ MEÐ SÉRINNGANGI OG MÖGNUÐU ÚTSÝNI.

Opið hús Sunnudaginn 1.mars 2026, kl. 13,00 - 13,30 íbúð 02-03   2.hæð vesturendi.  Heiðar Friðjónsson lg.fs. sýnir S: 693-3356.  netfang: heidar@valholl.is

Valhöll fasteignasala, Síðumúla 27, sími:588-4477 og Heiðar Friðjónsson löggiltur Fasteignasali, sími:693-3356, kynna: Falleg og velskipulögð 4ra herbergja 96,4 fm endaíbúð í vestur með sérinngangi í litlu 2ja hæða, 5 íbúða fjölbýli á frábærum útsýnsstað, endahús útvið óbyggt svæði,  skammt frá Spönginni, Grafarvogi.  Stórar suðvestur svalir með mögnuðu útsýni yfir Reykjavík, Reykjanes, Geldinganes, Faxaflóa, Snæfellsnes og fl.

SKIPULAG:

Forstofa með skáp og fatahengi.   Geymslukompa innaf með hillum.   Hol.   Baðherbergi flísalagt með baðkari m.sturtu í, nýleg blöndunartæki, oppnanlegur gluggi, handklæðaofn, innrétting með speglaskápum á vegg og sérlögn fyrir þvottavél og þurkara. Hjónaherbergi rúmgott með kommóðurekka.  Stofa þar sem er útgengt á rúmgóðar suðvestur svalir. Glæsilegt útsýni yfir Reykjavík, Reykjanes, Faxaflóa.    Eldhús með borðkrók, nýleg hvítlökkuð innrétting (2023), spanhelluborð, bakaraofn á vegg. Úr borðkróknum er glæsilegt útsýni á Esju, Geldinganes, Snæfellsnes og fl.   2 önnur svefnherbergi , skápar í öðru þeirra.  Milli þessara tveggja herbergja er vinnu / skrifborðs hol með endaglugga með frábæru vestur útsýni.  Gólfefni:  Parket á öllum gólfum nema flísar á baði og forstofu. Dúkur á geymslukompu.  Sérgeymsla á jarðhæðinni með glugga.  Sameiginleg hjólageymsla á jarðhæð.

Húsið er hraunað að utan og var skv, seljendum málað að utan 2022,  yfirfeldar hvítlakkaðar innihurðir eru nýjar frá 2022 og parketið. Næg bílastæði og sérmerkt bílastæði fyrir íbúðina.

ATH. Seljendur íbúðarinnar eru tengdir starfsmanni Valhallar fjölskylduböndum.

Allar nánari upplýsingar og milligöngu um skoðun annast Heiðar Friðjónsson löggiltur Fasteignasali S: 693-3356   heidar@valholl.is

Kort af Dísaborgir 7

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu