HÚSASJÁ

Núpalind 8

01-0702 · 201 Kópavogi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
28 myndir

148 m²

Stærð

3

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1999

Byggingarár

3258 m²

Lóð

Svalir

Lyfta

Bílastæði

Þvottahús



395 dagar á sölu

sell

99.900.000 kr

674.544 kr/m²

Miklaborg kynnir: Falleg og vel skipulögð þriggja herbergja 120 fm útsýnisíbúð á 7. hæð (efstu) í viðhaldslitlu fjölbýli í Núpalind í Kópavogi. Íbúðin er skráð 120 fm en auk þess fylgja íbúðinni tvö stæði í bílageymslu sem eru samtals 28 fm. Alls er eignin skráð 148,1 fm. Á hæðinni eru aðeins tvær íbúðir. Eignin skptist í forstofu, tvö svefnherbergi, eldhús, þvottahús, baðherbergi, stofu,borðstofu, yfirbyggðar svalir, búr og tvö stæði í bílastæðahúsi

Nánari upplýsingar veitir Óskar Sæmann í síma 6912312 eða osa@miklaborg.is

Núpalind 8 er staðsteypt steinhús byggt árið 1999 með einum stigagangi með lyftu, einangrað að utan og klætt með plötuklæðningu. Gluggar eru álklæddir timburgluggar með þreföldu einangrunargleri. Örstutt er í Lindaskóla, leikskóla, verslanir og göngu- og hjólaleiðir.

Íbúð 702 Nánari lýsing

Forstofa er rúmgóð með góðum skápum. Svefnherbergin eru tvö, bæði björt, með parketi á gólfum og góðum skápum. Stofa er björt og rúmgóð með stórum gluggum og miklu útsýni til suð-vesturs, útgengi út á stórar yfirbyggðar svalir sem snúa í suð-vestur. Borðstofa og stofa eru í opnu alrými. Eldhús er snyrtilegt og rúmgott með góðri innréttingu með ofni í vinnuhæð, helluborði, háf og plássi fyrir ísskáp og uppþvottavél. Búr er inn af eldhúsi. Sér þvottahús er innan íbúðar með skáp og skolvask og plássi fyrir þvottavél og þurrkara. Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, sturtuklefa, salerni og innréttingu. Parket er á öllum gólfum nema á baðherbergi, þvottahúsi og forstofu, en þau rými eru öll flísalögð. Innréttingar og skápar eru upprunaleg en í góðu ástandi.  Íbúðinni fylgja tvö bílastæði í lokuðu bílastæðahúsi.

Stigagangur og önnur sameign er sérlega snyrtileg. Á jarðhæð er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.

Nánari upplýsingar veitir

Óskar Sæmann Axelsson Löggiltur fasteignasali í síma 691-2312 eða osa@miklaborg.is

Kort af Núpalind 8

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28
Núpalind 8, 01-0702 | Húsasjá