Fiskislóð 81
02-0205 · 101 Reykjavík



26 dagar á sölu
68.900.000 kr
496.398 kr/m²
Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 jason@betristofan.is og Betri Stofan fasteignasala kynna: Fiskislóð 81, efri hæð með sérinngangi. Björt og falleg skrifstofuhæð við Fiskislóð með glæsilegu útsýni yfir Faxaflóa og miðborgina. Sérinngangur er í eignina og þaðan liggur fallegur stigi upp á gang.
Á hæðinni eru fimm skrifstofuherbergi, þar af tvö samliggjandi.
Eitt salerni er í eigninni ásamt eldhúskrók með lítilli geymslu inn af.
Á ganginum er notalegur setukrókur.
Skemmtileg og vel skipulögð eign á sívaxandi athafnasvæði með nægum gjaldfrjálsum bílastæðum.
Grandinn er orðinn mjög snyrtilegur. Gott þjónustu- og verslunarhverfi.
Nánari upplýsingar veitir: Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 - jason@betristofan.is löggiltur fasteignasali.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna





















