Álfholt 50
01-0101 · 220 Hafnarfirði



5 dagar á sölu
79.900.000 kr
686.426 kr/m²
RE/MAX og Ingi Þór Löggiltur fasteignasali kynna: Álfholt 50. Mikið endurnýjuð, 116,4fm jarðhæð með sérinngang og verönd. Sérlega vel staðsett eign á Hvaleyrarholtinu í Hafnarfirði.
Eign skiptist í: forstofu, hol, baðherbergi, þvottahús, eldhús, stofu, fjögur svefnherbergi, ásamt hlutdeild í sameign.
Nánari lýsing: Komið er inn um sérinngang, inn í forstofu með flísum á gólfi og fataskáp með rennihurðum. Gangur/hol er með ágætu parketi á gólfi. Eldhús tengist stofu skemmtilega, og er með nýlegri innréttingu, með bakaraofni í vinnuhæð, helluborði, efri og neðri skápum og ágætum borðkrók. Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum að hluta, baðkari með sturtuaðstöðu, vegghengdu salerni og haldklæðaofni.
Svefnherbergi eru fjögur, öll með parketi á gólfum, og fataskápar í tveimur herbergjanna.
Stofa er björt og rúmgóð með parketi á gólfi. Gengið er út á timbur verönd með skjólveggjum úr stofu. Þvottahús er með ágætri innréttingu með vask, flísum á gólfi og ágætu skápaplássi. Hægt er að ganga beint inn í þvottahús. Hjólageymsla er í sameign, þar er lítil geymslu aðstaða,
Sérlega gott aðgengi er í íbúð, sem og staðsetning gagnvart skóla mjög hentug.
Nánari Upplýsingar veitir Ingi Þór Löggiltur fasteignasali: 698-4450/ ingi@remax.is

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna

























