HÚSASJÁ

Snægil 26

07-0201 · 603 Akureyri

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
13 myndir

90 m²

Stærð

2

Herbergi

1

Baðherbergi

1998

Byggingarár

5718 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Geymsla

Þvottahús



27 dagar á sölu

sell

63.900.000 kr

710.000 kr/m²

Einkasala

Snægil 26- 201

Mjög smekkleg 3ja - 4ra herb. 90,0 fm íbúð á efri hæð í góðu fjórbýli í Giljahverfi á Akureyri. Gott útsýni er úr íbúðinni og svalir til suðurs út frá eldhúsi. Örstutt í leik- og grunnskóla og íþróttahúsið við Giljaskóla.

Lýsing eignar:

Forstofa er rúmgóð með fataskáp, kommóðu og spegli, brúnar flísar á gólfi.

Úr forstofu er komið í þvottahúsið, brúnar flísar á gólfi, hillur, vinnuborð og skolvaskur.

Geymsla/herbergi er inn af þvottahúsi, þar eru brúnar flísar á gólfi, fataskápur án hurðar, hillur og opnanlegur gluggi, er nú nýtt sem svefn- eða vinnuherbergi.

Parket er á gólfi í stofu og borðstofu, horngluggar sem hleypa vel birtu inn og bjóða upp á gott útsýni.

Eldhús er með spónlagðri innréttingu, ljósum flísum á gólfi og frá eldhúsi er gengið út á suðursvalir.

Baðherbergi er með flísum á gólfi, baðkar með sturtutækjum og glervegg. Ljós innrétting og opnanlegur gluggi.

Svefnherbergi eru tvö og bæði með fataskápum og parketi á gólfum.  Geymslan nýtist sem þriðja herbergið.

Gott sameiginlegt geymslurými er yfir íbúðinni, uppgengt í það af stigapalli.

Annað:

- Mjög barnvænt umhverfi

- Örustutt í leik- og grunnskóla

- Ljósleiðari

- Góðir göngustígar í hverfinu.Allar frekari upplýsingar veitir

Arnar  773 5100  arnar@fastak.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Akureyrar hvetur því

væntanlega kaupendur til að kynna sér gaumgæfilega ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra fagmanna um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Kort af Snægil 26

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu