HÚSASJÁ

Kirkjusandur 5

03-0403 · 105 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
34 myndir

166 m²

Stærð

4

Herbergi

3

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

1996

Byggingarár

10550 m²

Lóð

Garður

Svalir

Lyfta

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



37 dagar á sölu

sell

149.900.000 kr

905.193 kr/m²

Fasteignasalan Garður

Til sölu mjög rúmgóð 165 fm íbúð á 4. hæð í þessu glæsilega fjölbýlishúsi við Kirkjusand 5. Tvennar svalir eru í íbúðinni báðar yfirbyggðar og er mjög fallegt útsýni frá íbúðinni m.a. út á Faxaflóa, miðbæ Reykjavíkur og Esjuna. Tvö bílastæði í bílageymslu fylgja íbúðinni og eru þau hlið við hlið. Einnig er búið að tengja hleðslustöð við stæðið. Í húsinu er lyfta og yfirbyggðar upphitaðar svalir.

Húsvörður er starfandi á svæðinu sem sér um sameign og viðhald á þremur húsum sem standa á lóðinni. Einstök eign í virðulegu húsi.

Skipting eignar: Anddyri, stofa, borðstofa, vestursvalir, eldhús, sjónvarpshol, þrjú svefnherbergi, austursvalir, baðherbergi, gestasnyrting, geymsla, þvottahús á hæð, sérgeymsla, sameiginleg dekkjageymsla og tvö stæði í bílageymslu.

Nánari lýsing:

Anddyri: Rúmgott anddyri með fataskáp.

Gestasnyrting: Flísalögð gestasnyrting með hvítri innréttingu og spegli með innbyggðu ljósi.

Eldhús:  Fallegt eldhús með granít borðplötu, tengi fyrir tvöfaldan ísskáp, tengi fyrir uppþvottavél og góður borðkrókur með glæsilegu útsýni til norðurs og vesturs.

Stofa: Stofa er tvískipt í fremri stofu sem er borðstofa og innri stofu sem er setustofa. Út frá setustofu eru yfirbyggðar svalir með frábæru útsýni en opnanlegur gluggi er á svölunum.

Sjónvarpshol: Rúmgott sjónvarpshol er við svefnherbergin.

Svefnherbergi I: Rúmgott hjónaherbergi með góðum fataskápum. Parket á gólfi.

Svefnherbergi II: Gott herbergi með fataskáp. Parket á gólfi.

Svefnherbergi III: Hefur verið nýtt sem skirfstofa. Inn af herberginu eru stórar yfirbyggðar svalir sem snúa til norðurs og austurs. Stórir opnanlegir gluggar eru á svölunum.

Baðherbergi: Flísalagt baðherbergi með hvítri innréttingu og baðkari með sturtuaðstöðu.

Í kjallara er 10,1 fm geymsla íbúðarinnar ásamt tveimur stæðum í bílageymslu. Hleðslustöð er við annað stæðið en búið er að leggja rafmagn fyrir stöð að hinu. Stæðin liggja hlið við hlið.  Einnig er sameignargeymsla þar sem íbúðin hefur sérhillueiningu sem nýtist t.d. undir dekk og annað.

Á jarðhæð í húsinu er fótaaðgerðarstofa og í húsi númer 1 er æfingasalur með tækjum fyrir hús númer 1,3 og 5

Á lóðinni er lítill leikvöllur, lítill púttvöllur og í stuttu göngufæri er t.d. verslunarkjarni við Laugaalæk. Þar má finna kaffihúsið Kaffi lækur , Brauð og co., og fleiri góðar verslanir. Aðeins lengra í hverfinu má finna Laugardalslaug, Worldclass og alla þjónustu við og í kringum Borgartúnið.

Um skoðunarskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.

2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.

3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.

4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.

5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

www.fastgardur.is |  Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður

Kort af Kirkjusandur 5

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu